„Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. ágúst 2026 21:04 Anton Ingi Rúnarsson var ósáttur með úrslit leiksins í kvöld sem og aðstæður í Njarðvík. vísir/guðmundur Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram, sagði að sitt lið hefði orðið undir í baráttunni í fyrri hálfleik í 4-0 tapinu fyrir Grindavík/Njarðvík. Hann var ekki sáttur með aðstæður í Njarðvík í kvöld. „
Kannski vorum við aðeins skrefi á eftir í baráttunni þarna í fyrri hálfleik. Seinni hálfleikurinn fannst mér vera jafn og 4-0 gefur kannski ekki alveg rétta mynd af þessu,“ sagði Anton í samtali við Vísi eftir leik. „Við erum bara vel inni í leiknum þangað til að við gerum í rauninni einstaklingsmistök og fáum á okkur annað markið. Og því fylgja þarna mörk þrjú og fjögur í lokin þegar við erum komnar frekar framarlega á völlinn.“ Anton gerði tvöfalda skiptingu í leikhléi og Fram byrjaði seinni hálfleikinn af ágætis krafti. En liðið ógnaði marki Grindavíkur/Njarðvíkur lítið. „Þær eru bara þéttar til baka og með tanka þarna aftast sem eru kannski einu leikmennirnir sem kannski standa í okkar stelpum þarna frammi hvað varðar líkamsburði. Okkur hefur gengið erfiðlega að skora og það gekk aftur erfiðlega að skora gegn þeim í dag,“ sagði Anton en Fram hefur ekki skorað í leikjunum þremur gegn Grindavík/Njarðvík í sumar. Hann segir að annað markið hafi verið vendipunktur í leiknum. „Það skiptir náttúrulega bara öllu máli og það gerði svolítið út af við leikinn að lenda 2-0 undir þegar það eru 75 mínútur búnar. Það dofnar kannski aðeins yfir okkur. Við vorum farnar að hóta kannski marki áður en það kemur,“ sagði Anton. Hann segir að Grindavík/Njarðvík hefði kunnað betur á aðstæður í kvöld. „Leikurinn spilaðist nokkuð svona jafnt fannst mér. Þær náðu að spila aðeins betur og þær eru náttúrulega bara vanar grasinu hérna. Það er náttúrulega bara skraufaþurrt í dag, ekki vökvaður einn dropi og það er eiginlega bara til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn. Ég hlakka eiginlega bara til að fylgjast með leiknum hjá karlaliðinu á laugardaginn, hvort það verði vökvað fyrir Völsungsleikinn hjá þeim í Lengjudeildinni, þannig að það verður spennandi að sjá,“ sagði Anton að endingu.
Besta deild kvenna Fram UMF Grindavík UMF Njarðvík Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira