Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 21. ágúst 2026 17:10 Jón Þór Þorvaldsson er formaður FÍA. Vísir/Vilhelm Félag íslenskra atvinnuflugmanna lítur kaup Icelandair á 49% hlut í Fly Play Europe Holdco ehf. alvarlegum augum. Samningur um kaupin var gerður 20. ágúst á sama tíma og kjaradeila Icelandair og FÍA er til meðferðar hjá ríkissáttasemjara. Fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu að FÍA geri ekki athugasemd við að Icelandair leiti hagræðingar í rekstri en telji að skýringar stjórnenda á kaupunum standist ekki skoðun. „Í maí „engin fækkun“ í ágúst „á eftir að koma í ljós““ „FÍA getur ekki byggt kjaraviðræður á forsendum sem breytt er einhliða á fjögurra mánaða fresti. Þau störf sem hér eru í hættu eru störf sem unnin hafa verið á forsendum gildandi kjarasamninga. FÍA mun ekki geta fallist á að lögum og reglum íslensks vinnumarkaðar sé ekki fylgt,“ segir í tilkynningunni. Félagið segir upplýsingagjöf stjórnenda til starfsfólks ótraustvekjandi. „Þegar viljayfirlýsing um kaupin var tilkynnt 1. apríl fylgdu henni engar upplýsingar um áhrif á starfsfólk á Íslandi. Í maí sagði forstjóri félagsins í fjölmiðlum að ekki stæði til að fækka starfsfólki hér á landi færu kaupin í gegn. Þegar kaupin voru svo frágengin 20. ágúst og forstjórinn var spurður hvort íslenskar áhafnir myndu manna þau leiguflug sem færast á maltneska leyfið var svarið: „Það á eftir að koma í ljós.“ Fortakslaus yfirlýsing í maí er þannig orðin óvissa í ágúst án þess að viðsemjendur, starfsfólk eða markaður hafi verið upplýst um hvað breyttist.“ FÍA segir Ísland aðila að fleiri loftferðasamningum en Malta og tvísköttunarsamningum sömuleiðis. „Samstæðan á Íslandi hefur sinnt leiguflugsverkefnum í öllum sjö heimsálfum með frábærum árangri á íslensku flugrekstrarleyfi. Hryggjarstykkið í þeim árangri hefur verið starfsfólk félagsins, ekki síst flugáhafnir. Hvar kreppir skórinn?“ Rekstrarformið sé sniðganga kjarasamninga Icelandair hafi í viðræðunum hingað til lagt þunga áherslu á heimild til að leigja inn erlendar flugvélar ásamt áhöfnum og aukinn sveigjanleika í reglum um hvíldartíma og lengd fluga. „Á sama tíma hefur félagið tryggt sér flugrekstrarleyfi utan íslensks vinnumarkaðsumhverfis. Í því samhengi er nærtækasta merking orðsins „sveigjanleiki“ sú að komast undan íslenskum kjarasamningum og eftirliti yfirvalda. FÍA telur að rekstrarformið byggi á félagslegu undirboði, sniðgöngu kjarasamninga og flutningi starfa úr landi. Ef sú niðurstaða er röng er einfalt fyrir stjórnendur að leggja fram þær forsendur og útreikninga sem sýna annað. Slík gögn hafa ekki verið lögð fram hvorki fyrir viðsemjendur, starfsfólk né hluthafa.“ Að lokum leggur FÍA fram eftirfarandi kröfur: að stjórnendur leggi fram skriflegar og tölulegar forsendur kaupanna: hvaða hagræðing eráformuð, hvernig hún er reiknuð og á hverju hún byggir. að þeir svari skýrt hvaða störf, flugvélar og verkefni eigi að færast á maltneska leyfið, hvenær og á hvaða kjörum. að þeir nefni þá markaði sem maltneskt flugrekstrarleyfi opnar en íslenskt gerir ekki. að stjórnendur virði friðarskylduna og hætti einhliða yfirlýsingum sem grafa undan yfirstandandi viðræðum. að stjórn Icelandair Group hf. gefi hluthöfum, starfsfólki og viðsemjendum skýra grein fyrir raunverulegum forsendum verkefnisins. Kjaramál Flug Icelandair Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Sjá meira
Fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu að FÍA geri ekki athugasemd við að Icelandair leiti hagræðingar í rekstri en telji að skýringar stjórnenda á kaupunum standist ekki skoðun. „Í maí „engin fækkun“ í ágúst „á eftir að koma í ljós““ „FÍA getur ekki byggt kjaraviðræður á forsendum sem breytt er einhliða á fjögurra mánaða fresti. Þau störf sem hér eru í hættu eru störf sem unnin hafa verið á forsendum gildandi kjarasamninga. FÍA mun ekki geta fallist á að lögum og reglum íslensks vinnumarkaðar sé ekki fylgt,“ segir í tilkynningunni. Félagið segir upplýsingagjöf stjórnenda til starfsfólks ótraustvekjandi. „Þegar viljayfirlýsing um kaupin var tilkynnt 1. apríl fylgdu henni engar upplýsingar um áhrif á starfsfólk á Íslandi. Í maí sagði forstjóri félagsins í fjölmiðlum að ekki stæði til að fækka starfsfólki hér á landi færu kaupin í gegn. Þegar kaupin voru svo frágengin 20. ágúst og forstjórinn var spurður hvort íslenskar áhafnir myndu manna þau leiguflug sem færast á maltneska leyfið var svarið: „Það á eftir að koma í ljós.“ Fortakslaus yfirlýsing í maí er þannig orðin óvissa í ágúst án þess að viðsemjendur, starfsfólk eða markaður hafi verið upplýst um hvað breyttist.“ FÍA segir Ísland aðila að fleiri loftferðasamningum en Malta og tvísköttunarsamningum sömuleiðis. „Samstæðan á Íslandi hefur sinnt leiguflugsverkefnum í öllum sjö heimsálfum með frábærum árangri á íslensku flugrekstrarleyfi. Hryggjarstykkið í þeim árangri hefur verið starfsfólk félagsins, ekki síst flugáhafnir. Hvar kreppir skórinn?“ Rekstrarformið sé sniðganga kjarasamninga Icelandair hafi í viðræðunum hingað til lagt þunga áherslu á heimild til að leigja inn erlendar flugvélar ásamt áhöfnum og aukinn sveigjanleika í reglum um hvíldartíma og lengd fluga. „Á sama tíma hefur félagið tryggt sér flugrekstrarleyfi utan íslensks vinnumarkaðsumhverfis. Í því samhengi er nærtækasta merking orðsins „sveigjanleiki“ sú að komast undan íslenskum kjarasamningum og eftirliti yfirvalda. FÍA telur að rekstrarformið byggi á félagslegu undirboði, sniðgöngu kjarasamninga og flutningi starfa úr landi. Ef sú niðurstaða er röng er einfalt fyrir stjórnendur að leggja fram þær forsendur og útreikninga sem sýna annað. Slík gögn hafa ekki verið lögð fram hvorki fyrir viðsemjendur, starfsfólk né hluthafa.“ Að lokum leggur FÍA fram eftirfarandi kröfur: að stjórnendur leggi fram skriflegar og tölulegar forsendur kaupanna: hvaða hagræðing eráformuð, hvernig hún er reiknuð og á hverju hún byggir. að þeir svari skýrt hvaða störf, flugvélar og verkefni eigi að færast á maltneska leyfið, hvenær og á hvaða kjörum. að þeir nefni þá markaði sem maltneskt flugrekstrarleyfi opnar en íslenskt gerir ekki. að stjórnendur virði friðarskylduna og hætti einhliða yfirlýsingum sem grafa undan yfirstandandi viðræðum. að stjórn Icelandair Group hf. gefi hluthöfum, starfsfólki og viðsemjendum skýra grein fyrir raunverulegum forsendum verkefnisins.
að stjórnendur leggi fram skriflegar og tölulegar forsendur kaupanna: hvaða hagræðing eráformuð, hvernig hún er reiknuð og á hverju hún byggir. að þeir svari skýrt hvaða störf, flugvélar og verkefni eigi að færast á maltneska leyfið, hvenær og á hvaða kjörum. að þeir nefni þá markaði sem maltneskt flugrekstrarleyfi opnar en íslenskt gerir ekki. að stjórnendur virði friðarskylduna og hætti einhliða yfirlýsingum sem grafa undan yfirstandandi viðræðum. að stjórn Icelandair Group hf. gefi hluthöfum, starfsfólki og viðsemjendum skýra grein fyrir raunverulegum forsendum verkefnisins.
Kjaramál Flug Icelandair Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Sjá meira