Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. ágúst 2026 18:43 Eftir þrjá sigra í röð eru Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur hennar í Haukum komnar upp í 2. sæti Lengjudeildar kvenna. En KR, HK og Selfoss eru skammt undan. vísir/hulda margrét Grótta er komin með annan fótinn upp í Bestu deild kvenna en gríðarleg spenna er um 2. sætið í Lengjudeildinni. Haukar, KR, HK og Selfoss keppast um það.
KR tapaði fyrir FHL á heimavelli, 0-2. Alexis Wright skoraði bæði mörk Austfirðinga sem eru í 7. sæti deildarinnar með 21 stig. Tapið hjá KR gaf Haukum tækifæri á að ná 2. sætinu og það gerðu Hafnfirðingar með 1-5 sigri á Völsungum á Húsavík. Þetta var þriðji sigur Hauka í röð. Lilja Þórdís Guðjónsdóttir skoraði tvö mörk sem og Sara Björk Gunnarsdóttir. Landsliðsfyrirliðinn fyrrverandi hefur skorað fjögur mörk í síðustu þremur leikjum Hauka. Halla Þórdís Svansdóttir lagði svo eitt mark í púkkið. Maria Munoz skoraði mark Völsungs sem er í níunda og næstneðsta sæti með tólf stig, fimm stigum frá öruggu sæti. Haukar eru með 27 stig í 2. sæti deildarinnar en KR, HK og Selfoss eru öll með 26 stig. Í næstu umferð mætast Haukar og KR í gríðarlega mikilvægum leik á Ásvöllum. HK vann 0-8 sigur á botnliði Tindastóls á Sauðárkróki. Cally Togiai og Karlotta Björk Andradóttir skoruðu báðar þrennu fyrir HK-inga og Henríetta Ágústsdóttir og Valgerður Lilja Arnarsdóttir voru einnig á skotskónum. Stólarnir eru áfram með þrjú stig á botni deildarinnar og 2. deildin þeirra bíður þeirra á næsta ári. Stevie Reynolds tryggði Selfossi 1-0 sigur á ÍA. Þetta var þriðji sigur Selfyssinga í síðustu fjórum leikjum. Skagakonur eru í 6. sæti deildarinnar með 21 stig. Grótta er með 35 stig á toppi deildarinnar, átta stigum meira en Haukar og níu stigum á undan KR, HK og Selfossi. Seltirningar þurfa aðeins einungis eitt stig til viðbótar til að tryggja sér sæti í Bestu deildinni á næsta tímabili.
Lengjudeild kvenna KR FHL Völsungur Haukar Tindastóll HK UMF Selfoss ÍA Grótta Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira