Rífum í lóðin Karólína Helga Símonardóttir skrifar 23. ágúst 2026 10:46 Við í nýjum meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar ætlum ekki að bíða eftir betri tímum. Við ætlum að skapa þá. Eitt af okkar fyrstu verkum á nýju kjörtímabili er að halda hjóli atvinnulífsins gangandi og skapa betri skilyrði fyrir uppbyggingu. Þess vegna höfum við tekið upp nýtt fyrirkomulag við greiðslu gatnagerðar- og byggingarréttargjalda. Hafnarfjörður er fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að innleiða úrræði af þessu tagi. Með breytingunni verður hægt að dreifa greiðslum á allt að fjóra gjalddaga yfir allt að 24 mánuði og, þar sem það á við, tengja greiðslur við verkáfanga. Þetta er ekki niðurfelling gjalda og ekki afsláttur. Þetta er sveigjanlegri og sanngjarnari leið til að standa við greiðslurnar. Við teljum skynsamlegt að greiðslubyrðin geti fylgt raunverulegri framvindu framkvæmda. Fyrstu skref byggingarframkvæmda geta verið fjárfrek, á sama tíma og tekjur af verkefninu hafa ekki enn orðið til. Með meiri sveigjanleika gefst verkefninu svigrúm til að komast af stað og halda áfram. Fyrir alla Mikilvægt var fyrir okkur að þetta úrræði yrði ekki aðeins fyrir stærstu verktakana. Sama meginregla gildir um einstaklinginn sem er að byggja sitt eigið heimili, fyrirtækið sem er að reisa nýtt húsnæði og stærri uppbyggingaraðilann. Þetta snýst um jafnræði og skýrar leikreglur. Fjölskylda sem er að byggja sitt fyrsta heimili á ekki endilega mikið laust fé á fyrstu stigum framkvæmdarinnar. Fyrirtæki sem er að byggja nýtt húsnæði þarf að geta stýrt lausafé sínu í takt við framvindu verksins. Þegar greiðslubyrðin getur fylgt verkáföngum verður auðveldara að hefja framkvæmdir og halda þeim gangandi. Og þegar framkvæmdir fara af stað verða til störf, viðskipti og verðmæti. Það er gott fyrir Hafnarfjörð. Ábyrgð og uppbygging fara saman Við erum því ekki að velja á milli ábyrgðar og uppbyggingar. Við getum gert hvort tveggja. Það er sú nálgun sem nýr meirihluti í Hafnarfirði vill standa fyrir: að bregðast við raunverulegum aðstæðum með lausnum sem eru bæði sanngjarnar og fjárhagslega ábyrgar. Við viljum ekki að lóðir standi óhreyfðar þegar hægt er að hefja framkvæmdir. Við viljum ekki að góð verkefni tefjist vegna þess að greiðslubyrðin fellur á óheppilegum tímapunkti. Því þegar hús rísa verða til heimili, störf og fyrirtæki. Þá vex bærinn okkar og atvinnulífið fær nýtt líf. Nú rífum við í lóðin. Höfundur er formaður Skipulags- og byggingaráðs Hafnarfjarðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hafnarfjörður Karólína Helga Símonardóttir Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Sjá meira
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar