Fótbolti

Thelma gaf stoðsendingu í hefndarsigri

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Thelma Karen á sprettinum í leik með BK Hacken.
Thelma Karen á sprettinum í leik með BK Hacken. Sara Cavallini - UEFA/UEFA via Getty Images

Thelma Karen Pálmadóttir gaf stoðsendingu í 4-1 sigri BK Hacken gegn AIK í 15. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í dag.

Topplið Hacken hefur aðeins tapað einum leik á tímabilinu, gegn AIK í fyrri umferðinni, en hefndi vel fyrir það á heimavelli í dag.

Leikurinn var jafn og spennandi í upphafi en þegar Thelma Karen lagði upp mark fyrir Maja Bodin á 40. mínútu náði Hacken forystunni á ný, 2-1, og góðum tökum á leiknum.

Hacken bætti svo þriðja og fjórða markinu við í hálfleik. Thelma fór af velli á 63. mínútu fyrir Tinde Karlsson sem skoraði fjórða markið.

Þetta var fyrsta stoðsending Thelmu Karenar á tímabilinu en fyrir hafði hún skorað 4 mörk í 13 leikjum í deildinni.

Hacken er með 42 stig að 15 umferðum loknum, í efsta sæti deildarinnar og með fjögurra stiga forskot á Hammarby í öðru sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×