Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Freyja Þórisdóttir skrifar 23. ágúst 2026 18:15 Björgunarsveitir voru kallaðar út vegna göngumanns sem hafði slasast illa á fæti og gat með engu móti gengið niður af Sólheimajökli. Hann var því hífður upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Landsbjörg Þyrla Landhelgisgæslunnar var send að austanverðum Sólheimajökli í kjölfar útkalls vegna manns sem hafði slasast á fæti um tvöleytið í dag, sunnudaginn 23. ágúst. Hann var hífður upp og fluttur til Reykjavíkur undir læknishendur en skömmu áður höfðu björgunarsveitir sótt annan slasaðan mann á svipuðum slóðum.
Þetta staðfesti Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar í samtali við blaðamann Vísis en hann sagði fyrra útkallið hafa borist um hádegisbil. „Þetta er annað útkallið í dag á svipaðar slóðir. Það byrjaði upp úr hádeginu með útkalli á Fimmvörðuháls,“ segir hann en þar hafði göngumaður slasast á fæti svo að hann treysti sér ekki til þess að halda áfram göngu sinni. Sá var sóttur upp í Fimmvörðuskála. Fjöldi fólks kallaður út Þá var búið að kalla út björgunarsveitir bæði frá Hvolsvelli og niður á Eyrarbakka. „Það mál leystist farsællega, hann var sóttur upp í Fimmvörðuskála, sem er ansi hátt,“ segir Jón og bætir við „þegar björgunarsveitir voru á niðurleið með hann þá kom seinna útkallið.“ Mynd frá aðgerðunum í dag þar sem slasaður göngumaður var sóttur á Sólheimajökul.Landsbjörg Þá hafi verið kallað aftur út og víðar en í fyrra skipti, björgunarsveitarfólk sem hafi komið að verkinu hafi hraðað sér „alveg frá Kirkjubæjarklaustri og vestur yfir að inn á Árborgarsvæðið“ en Eyrbekkingarnir hafi einnig verið á svæðinu. Einnig var óskað eftir aðstoð fjallabjörgunarmanna frá Vestmannaeyjum en þeir voru sóttir af björgunarskipinu Þór sem fór með þá upp í Landeyjahöfn og þar hafi þeir svo verið sóttir af félögum sínum uppi á landi. Jón segir miklu hafa munað um blíðviðrið í dag, það hafi gert þeim miklu auðveldara fyrir að hífa manninn, sem hafi slasast illa á erfiðum stað á austanverðum Sólheimajökli, upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar sem gat ekki lent. „Þetta var talsvert víðtækt útkall, enda vitað að þetta væri á erfiðum stað en ég veit ekki hversu margir voru komnir á svæðið,“ segir hann en Ásgeir Erlendsson hjá Landhelgisgæslunni staðfesti einnig að óskað hafi verið eftir aðstoð þyrlunnar um klukkan tvö í dag. Nauðsynlegt að hífa hann upp Það hafi sem fyrr segir verið þörf á þyrlu vegna staðsetningarinnar og það hafi verið augljóst að það yrði mjög erfitt að koma honum af staðnum öðruvísi en með þyrlu. „Þess vegna var þyrlusveitin kölluð út sem hérna hífði manninn um borð í þyrluna og flutti hann síðan á slysadeild,“ staðfesti Ásgeir í samtali við blaðamann. Jón Þór útskýrði einnig að manninum hefði verið komið fyrir í svokallaðri grjónadýnu og hann búinn undir flutninginn. Aðgerðirnar hafi gengið mjög vel þrátt fyrir erfiða staðsetningu en hann telur manninn sem slasaðist á jöklinum hafa verið fótbrotinn eða í það minnsta illa brákaðan. „Ég er ekki alveg klár á því hvar þetta er nákvæmlega, þetta er við jökulsporðinn austanverðan en svona tiltölulega framarlega á honum.“
Sjúkraflutningar Björgunarsveitir Landhelgisgæslan Jöklar á Íslandi Fimmvörðuháls Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Sjá meira