Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar 24. ágúst 2026 09:10 Síðastliðinn miðvikudag hækkaði Seðlabanki Íslands stýrivexti um 0,25 prósentustig og standa þeir nú í 8,0%. Það verður seint talið fagnaðarefni. Evrópuhreyfingin birti þó fyrirfram unnið myndband þar sem framkvæmdastjóri hennar labbaði skælbrosandi um götur borgarinnar og færði áhorfendum tíðindin af vaxtahækkuninni. Evrópuhreyfingin virðist hafa beðið í eftirvæntingu eftir tilkynningu Seðlabankans svo að hún gæti loksins birt þetta fyrirfram unna myndband sitt sem einhvers konar úrkynjaða útgáfu af hvatningarmyndbandi til þjóðarinnar um að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslunni næsta laugardag. Pólitískt sjálfsmark Ég er hins vegar ósammála því að þetta hafi átt að vera eitthvert sérstakt fagnaðarefni fyrir já-sinna. Þvert á móti held ég að Evrópuhreyfingin hefði átt að svekkja sig alveg jafn mikið á þessari vaxtahækkun og almenningur, ef ekki meira.Því hvað gerir þetta annað en að staðfesta það sem nei-sinnar hafa haldið fram í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar: að tiltekt í efnahagsmálum verði sett á hakann á meðan aðildarferlinu stendur?Hvernig eigum við sem þjóð að geta trúað því að ríkisstjórnin geti haldið augunum á boltanum í efnahagsmálum samhliða aðildarviðræðum ef henni tókst ekki einu sinni að gera það samhliða þessari kosningabaráttu, sem er umtalsvert umfangsminni en aðildarviðræður? Á hvaða bolta viljum við að augu stjórnvalda séu? Fólk þarf því að spyrja sig: „Er ég tilbúin(n) að búa við viðvarandi hátt vaxtastig, með líkum á enn frekari vaxtahækkunum, meðan á samningsferlinu stendur, til þess eins að fá glataðan samning í hendurnar sem ég mun hvort sem er hafna?“Mér finnst það í það minnsta ekki hljóma mjög skynsamlega.Við þurfum því fyrst að meta hver líkleg afstaða okkar verður í seinni kosningunum og, út frá því, ákveða hvort við séum tilbúin að sætta okkur við að augu stjórnvalda verði einhvers staðar allt annars staðar en á efnahagsboltanum næstu árin. Höfundur er fjármálaverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Síðastliðinn miðvikudag hækkaði Seðlabanki Íslands stýrivexti um 0,25 prósentustig og standa þeir nú í 8,0%. Það verður seint talið fagnaðarefni. Evrópuhreyfingin birti þó fyrirfram unnið myndband þar sem framkvæmdastjóri hennar labbaði skælbrosandi um götur borgarinnar og færði áhorfendum tíðindin af vaxtahækkuninni. Evrópuhreyfingin virðist hafa beðið í eftirvæntingu eftir tilkynningu Seðlabankans svo að hún gæti loksins birt þetta fyrirfram unna myndband sitt sem einhvers konar úrkynjaða útgáfu af hvatningarmyndbandi til þjóðarinnar um að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslunni næsta laugardag. Pólitískt sjálfsmark Ég er hins vegar ósammála því að þetta hafi átt að vera eitthvert sérstakt fagnaðarefni fyrir já-sinna. Þvert á móti held ég að Evrópuhreyfingin hefði átt að svekkja sig alveg jafn mikið á þessari vaxtahækkun og almenningur, ef ekki meira.Því hvað gerir þetta annað en að staðfesta það sem nei-sinnar hafa haldið fram í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar: að tiltekt í efnahagsmálum verði sett á hakann á meðan aðildarferlinu stendur?Hvernig eigum við sem þjóð að geta trúað því að ríkisstjórnin geti haldið augunum á boltanum í efnahagsmálum samhliða aðildarviðræðum ef henni tókst ekki einu sinni að gera það samhliða þessari kosningabaráttu, sem er umtalsvert umfangsminni en aðildarviðræður? Á hvaða bolta viljum við að augu stjórnvalda séu? Fólk þarf því að spyrja sig: „Er ég tilbúin(n) að búa við viðvarandi hátt vaxtastig, með líkum á enn frekari vaxtahækkunum, meðan á samningsferlinu stendur, til þess eins að fá glataðan samning í hendurnar sem ég mun hvort sem er hafna?“Mér finnst það í það minnsta ekki hljóma mjög skynsamlega.Við þurfum því fyrst að meta hver líkleg afstaða okkar verður í seinni kosningunum og, út frá því, ákveða hvort við séum tilbúin að sætta okkur við að augu stjórnvalda verði einhvers staðar allt annars staðar en á efnahagsboltanum næstu árin. Höfundur er fjármálaverkfræðingur.
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar