Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar 24. ágúst 2026 10:11 Hvað gæti Ísland fengið út úr ESB-viðræðum sem við vitum ekki nú þegar? Harla lítið. Grunnskilmálarnir liggja fyrir. Við fengjum fulla aðild að innri markaði ESB og stefnt yrði að upptöku evru þegar skilyrði þess væru uppfyllt. Á móti þyrftum við að framselja hluta fullveldisheimilda okkar og lúta sameiginlegum reglum ESB, meðal annars í sjávarútvegi, landbúnaði og utanríkisviðskiptum. Aðildarviðræður eru enda ekki hefðbundnar samningaviðræður tveggja jafnsettra aðila. ESB tekur sjálft fram að regluverk sambandsins sé ekki til samninga. Umsóknarríkið þarf að laga lög og stjórnsýslu að því. Samið er fyrst og fremst um útfærslur, tímasetningar og hugsanlegar tímabundnar undanþágur. Stóra spurningin er því einföld: Til hvers ætti ein ríkasta og farsælasta þjóð heims að leggja í margra ára óvissuleiðangur til að semja um réttindi og yfirráð sem hún hefur að verulegu leyti nú þegar? En sakar nokkuð að tékka? Í fljótu bragði hljómar saklaust að halda áfram með umsóknina frá 2009, bara til að sjá hvað býðst. Vandinn er fórnarkostnaðurinn. Að laga íslensk lög og stjórnsýslu að regluverki ESB er risavaxið verkefni sem gæti tekið mörg ár. Stór hluti stjórnsýslunnar færi í þá vinnu og hik og tafir gætu orðið á öðrum mikilvægum ákvörðunum. Óvissan gæti jafnframt sett fjárfestingar í bið, ekki síst í sjávarútvegi og landbúnaði. Viðræðurnar gætu einnig dregist á langinn. Ísland myndi sækjast eftir sérlausnum á viðkvæmum sviðum og óvíst er hvort samningur næðist sem bæði ESB og meirihluti Íslendinga gætu sætt sig við. Á meðan liðu árin. Enginn þriðji kostur Á kjörseðlinum stendur já eða nei. Já setur af stað aðildarferli sem hefur inngöngu í ESB að markmiði. Þess vegna er „já til að sjá“ enginn raunverulegur þriðji kostur. Kjósendur ættu því að kynna sér fyrirfram hvað aðild felur í sér og greiða atkvæði samkvæmt því. Sá sem telur kosti aðildar vega þyngra en gallana segir já. Sá sem telur fórnarkostnaðinn of mikinn segir nei. Hvers vegna ég segi nei Sjálfur tel ég gildi ESB að mörgu leyti samrýmast íslenskum gildum. Mín meginástæða fyrir nei-i er önnur: Ég er ekki tilbúinn að tefla fullveldisheimildum Íslands og forræði yfir auðlindum þjóðarinnar í tvísýnu fyrir óljósan ávinning sem hugsanlega kæmi í ljós síðar – jafnvel þótt hann yrði gerður upp í evrum. Höfundur er framhaldsskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun