Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar 24. ágúst 2026 11:42 Sjálfstæðisflokkurinn valdi sér evrópska samstarfsflokka haustið 2023. Þá gekk hann sem aukaaðili í European People's Party, EPP, flokkafjölskyldu evrópskra mið-, hægri- og kristilegra lýðræðisflokka. Það var tveimur árum eftir að Sjálfstæðisflokkurinn sagði skilið við ECR, samtök ESB-gagnrýnna íhaldsflokka. Miðflokkurinn gekk í ECR í júní síðastliðnum, ásamt Sönnum Finnum og Danmarksdemokraterne. Í EPP er afstaðan skýr. Moderaterna í Svíþjóð, Kokoomus í Finnlandi og Konservative í Danmörku styðja aðild ríkja sinna að Evrópusambandinu. Í Noregi, landinu sem líkist okkar mest, með EES-samning, eigin gjaldmiðil og stóran sjávarútveg, vill Høyre að landið gangi í Evrópusambandið. Høyre hefur nákvæmlega sömu stöðu innan EPP og Sjálfstæðisflokkurinn. Þetta eru hægrimenn sem hafa metið hagsmuni sinni þjóða og komist að þeirri niðurstöðu að í heimi hernaðarógnar úr austri og árása á frjáls milliríkjaviðskipti úr vestri, sé betra að vera hluti af Evrópusambandinu en utan þess. Um helgina verður ekki kosið um aðild. Spurningin er: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?" Ríkisstjórnin hefur heitið því að aðildarsamningur fari síðan í sérstaka þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er það sama og Bjarni Benediktsson, fyrrverandi formaur Sjálfstæðisflokksins, lagði til fyrir rúmum áratug. Ég studdi þetta ferli þá og ég styð það núna. Á laugardaginn ákveðum við því ekkert annað en hvort við ætlum að afla okkur upplýsinga áður en ákvörðun er tekin um aðild að Evrópusambandinu.. Afstaða núverandi forystu Sjálfstæðisflokksins gegn viðræðum er frávik frá því sem nánustu systurflokkar hans í Evrópu telja skynsamlegt. Frávik frá því sem yfirgnæfandi meirihluti frjálslyndra evrópskra hægriflokka telur skynsamlegt. Ég er frjálslyndur evrópskur hægrimaður og flokksbundinn Sjálfstæðismaður. Ég ætla að segja já — já við viðræðum, já við upplýstri ákvörðun og já við því að þjóðin fái sjálf að eiga lokaorðið. Ef samningurinn verður lélegur, segi ég að sjálfsögðu nei. Höfundur er stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur og flokksbundinn Sjálfstæðismaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Svavar Halldórsson Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Sjá meira
Sjálfstæðisflokkurinn valdi sér evrópska samstarfsflokka haustið 2023. Þá gekk hann sem aukaaðili í European People's Party, EPP, flokkafjölskyldu evrópskra mið-, hægri- og kristilegra lýðræðisflokka. Það var tveimur árum eftir að Sjálfstæðisflokkurinn sagði skilið við ECR, samtök ESB-gagnrýnna íhaldsflokka. Miðflokkurinn gekk í ECR í júní síðastliðnum, ásamt Sönnum Finnum og Danmarksdemokraterne. Í EPP er afstaðan skýr. Moderaterna í Svíþjóð, Kokoomus í Finnlandi og Konservative í Danmörku styðja aðild ríkja sinna að Evrópusambandinu. Í Noregi, landinu sem líkist okkar mest, með EES-samning, eigin gjaldmiðil og stóran sjávarútveg, vill Høyre að landið gangi í Evrópusambandið. Høyre hefur nákvæmlega sömu stöðu innan EPP og Sjálfstæðisflokkurinn. Þetta eru hægrimenn sem hafa metið hagsmuni sinni þjóða og komist að þeirri niðurstöðu að í heimi hernaðarógnar úr austri og árása á frjáls milliríkjaviðskipti úr vestri, sé betra að vera hluti af Evrópusambandinu en utan þess. Um helgina verður ekki kosið um aðild. Spurningin er: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?" Ríkisstjórnin hefur heitið því að aðildarsamningur fari síðan í sérstaka þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er það sama og Bjarni Benediktsson, fyrrverandi formaur Sjálfstæðisflokksins, lagði til fyrir rúmum áratug. Ég studdi þetta ferli þá og ég styð það núna. Á laugardaginn ákveðum við því ekkert annað en hvort við ætlum að afla okkur upplýsinga áður en ákvörðun er tekin um aðild að Evrópusambandinu.. Afstaða núverandi forystu Sjálfstæðisflokksins gegn viðræðum er frávik frá því sem nánustu systurflokkar hans í Evrópu telja skynsamlegt. Frávik frá því sem yfirgnæfandi meirihluti frjálslyndra evrópskra hægriflokka telur skynsamlegt. Ég er frjálslyndur evrópskur hægrimaður og flokksbundinn Sjálfstæðismaður. Ég ætla að segja já — já við viðræðum, já við upplýstri ákvörðun og já við því að þjóðin fái sjálf að eiga lokaorðið. Ef samningurinn verður lélegur, segi ég að sjálfsögðu nei. Höfundur er stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur og flokksbundinn Sjálfstæðismaður.
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar