Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Kjartan Kjartansson skrifar 24. ágúst 2026 14:16 Stuðlagil er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Vísir Allt tiltækt lið björgunarsveita á Austurlandi hefur verið kallað út vegna tilkynningar um að maður hafi fallið út í Jöklu í Stuðlagili. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið austur með straumvatnsbjörgunarmenn frá höfuðborgarsvæðinu.
Tilkynning um slysið barst um klukkan eitt, að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Hann hafði ekki frekari upplýsingar um þann sem féll í ána aðrar en að hann væri fullorðinn einstaklingur. Fyrstu björgunarsveitarmennirnir eru mættir á staðinn en fleiri eru á leiðinni af Austurlandi. Þyrla Landhelgisgæslunnar lagði af stað með straumvatnsbjörgunarmenn frá sveitum á höfuðborgarsvæðinu nú eftir klukkan tvö. Leit stendur yfir Í tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi segir að um klukkan 13:15 hafi borist tilkynning um slysið. Fjölmennt lið björgunaraðila hafi strax verið kallað út og sé við leit að manninum. Frekari upplýsingar sé ekki hægt að veita að svo stöddu. Samkvæmt umfjöllun Austurfréttar voru sérsveitarmenn ræstir út frá Akureyri til aðstoðar við leitina. Stuðlagil hefur verið vinsæll viðkomustaður ferðamanna á Austurlandi undanfarin ár. Erlend ferðakona á fertugsaldri lést þegar hún féll í ána í október árið 2024. Þremur og hálfu ári áður komu nærstaddir konu sem féll í klettum við gilið til bjargar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Björgunarsveitir Múlaþing Stuðlagil Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira