Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar 24. ágúst 2026 14:41 Þegar ljóst var að við myndum kjósa um það hvort hefja ætti aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný þann 29. ágúst fór ég að spyrja einfaldra spurninga. Gætum við búið við lægri vexti, minni verðbólgu og meiri efnahagslegan stöðugleika? Ég var ekki að halda því fram að ég vissi svarið. Ég var einfaldlega að spyrja hvort svarið gæti verið já. Þessi einfalda spurning hefur hins vegar gjarnan fallið í grýttan farveg, sem ég á erfitt með að skilja. Hvað er það við þessa spurningu sem vekur svona hörð viðbrögð? Er einhver ógn fólgin í því að velta því fyrir sér að hlutirnir geti breyst til hins betra? Er það ekki einmitt hluti af framþróun fremur en stöðnun? Hvers vegna ættum við að sætta okkur við stöðuna eins og hún er, ef við höfum möguleika á að gera betur? Í kjölfarið hef ég heyrt því haldið fram að samningur um aðild myndi ekki færa okkur lægri vexti, minni verðbólgu eða meiri stöðugleika. Og þess vegna sé tilgangslaust að fara í viðræður. En ef við teljum að upptaka evru geti verið ein leið að meiri efnahagslegum stöðugleika til lengri tíma, þá hlýtur að vera skynsamlegt að skoða hvort og með hvaða skilmálum Ísland gæti orðið aðili að Evrópusambandinu. Og áður en hægt er að taka slíka ákvörðun þurfum við að vita hvað samningur myndi í raun fela í sér. Þegar ég bendi á þetta þá fæ ég svarið: Það er ekkert um að semja! En hvernig getum við verið svo viss um það áður en við höfum farið í gegnum viðræðurnar og séð hvað raunverulega er hægt að semja um? Stundum virðist ekki nóg að segja: „Ég vil sjá hvað kemur út úr þessu.“ Maður þarf helst að vera sérfræðingur í sjávarútvegi, landbúnaði og Evrópurétti, kunna Lissabon-sáttmálann utanbókar og vera með Maastricht-skilyrðin tattúeruð á handabaki til að mega teljast gjaldgengur í umræðunni. En þarf virkilega fimm háskólagráður til að segja já til að sjá? Ég er ekki sérfræðingur í þessum málaflokkum. Og ég held að það sé heldur ekki sanngjörn krafa til venjulegs kjósanda. Við hljótum að mega skoða aðra möguleika án þess að þurfa fyrst að sanna að við vitum nákvæmlega hvert þeir leiða. Og við hljótum að mega hafa skoðun á því hvort það sé þess virði að kanna þá möguleika, jafnvel þótt við vitum ekki fyrirfram hvert svarið verður. Við megum spyrja, kynna okkur málið og taka svo okkar eigin ákvörðun. Þess vegna segi ég já til að sjá. Höfundur er stjórnarmaður í samtökunum Sjá. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun