Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar 24. ágúst 2026 20:32 Á laugardaginn fer fram atkvæðagreiðsla um hvort ganga eigi til viðræðna um inngöngu í Evrópusambandið. Ljóst er að skoðanir eru mjög skiptar. Eigum við að ganga til samninga eða ekki? Hugmyndir um mögulega aðild hafa komið upp í áratugi. Hvað er best fyrir okkur Íslendinga? Þegar ég var ungur maður var ekki langt liðið frá þorskastríðunum, en þeim lauk með fullum yfirráðum Íslands yfir fiskimiðunum fyrir um 50 árum. Sú niðurstaða skipti þjóðina miklu máli. Á þeim tíma taldi ég að við ættum ekkert erindi inn í Evrópusambandið. En hver er staðan núna – eigum við erindi inn? Þarna eru augljóslega rök með og á móti, en í mínum huga er enginn vafi á því að best sé fyrir Íslendinga að kanna hvernig samningi er hægt að ná um inngöngu. Sú fullyrðing hefur komið fram að aðildarviðræður myndu þýða að fara þyrfti samhliða í umfangsmikla aðlögun að sambandinu. En sjálfur stækkunarstjóri sambandsins hefur sagt að Ísland þyrfti ekki að breyta neinum lögum fyrr en aðildarsamningur hefði verið samþykktur. Rétt er að hafa í huga að gegnum aðild að Evrópska Efnahagssvæðinu (EES) höfum við þegar að miklu leyti aðlagað Ísland. Það er því ekki að sjá að þessi fullyrðing nei-sinna sé á rökum reist. Ef niðurstaða samningaviðræðnanna yrði sú að Evrópusambandið tæki að miklu leyti yfir stjórn fiskveiða við Ísland, er enginn vafi í mínum huga að ég myndi segja nei við aðild. En líklegasta niðurstaðan, miðað við reglurnar sem nú eru í gildi og hvernig málum hefur verið háttað undanfarna áratugi, er að Ísland stýri sínum miðum áfram. Þar ræður mestu að engin Evrópusambandslönd hafa haft veiðirétt á Íslandsmiðum í bráðum hálfa öld. Við þurfum að auki að styðja vel landbúnað hér á landi, sem skiptir miklu fyrir fæðuöryggið, ekki síst á þeim viðsjárverðu tímum sem nú eru uppi. Ef samningur uppfyllir ofangreind skilyrði, myndi ég segja já við aðild. Hér á Íslandi er staðan sú að verðbólga hefur lengst af verið mun hærri en í Evrópu. Jafnframt eru vextir verulega hærri hér en víðast hvar annarstaðar. Það gerir kaup á eigin fasteign miklu erfiðari en annars væri. Vextir voru að hækka enn einn ganginn í síðustu viku. Ef við göngum í Evrópusambandið gætum við með tíð og tíma losnað við þessa áþján sem leggst þungt á yngri kynslóðirnar. Því eru margir möguleikar sem gætu fylgt aðild. Við fáum ekki svörin við hver niðurstaðan verður án þess að fara í aðildarviðræður. Við höfum verið aðilar að EES í yfir þrjá áratugi. Margir stjórnmálamenn sem voru í stjórnarandstöðu þegar samningurinn var innleiddur vöruðu eindregið við aðild að EES, sögðu að samningnum fylgdi stórfellt fullveldisafsal og hann myndi koma mjög illa út fyrir Ísland. En annað kom á daginn. Aðildin hefur reynst Íslandi mjög vel. Um 70% af regluverki Evrópusambandsins hefur þegar verið innleitt hér á landi vegna aðildarinnar. En Ísland hefur ekkert um þessar reglur að segja. Með aðild yrði breyting þar á. Einnig er mikilvægt að muna að þegar samningur liggur fyrir yrði hann borinn undir þjóðaratkvæði. Tal um að það sé ekki öruggt að svo yrði fær ekki staðist. Ef almenningur teldi samninginn ekki ásættanlegan segjum við einfaldlega nei. Noregur hefur tvisvar (1972 og 1994) greitt atkvæði um aðild að Evrópusambandinu og var niðurstaðan nei í bæði skiptin. Sambandið virti niðurstöðuna og samstarf Noregs og sambandsins hélt áfram. Sagan sýnir því að Ísland tekur enga áhættu með samningaviðræðum. Til að loka ekki á tækifærin segi ég já á laugardaginn kemur. Höfundur er prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun