„Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Árni Sæberg skrifar 25. ágúst 2026 14:51 Tilkynnt var um mann sem hafði fallið í Jöklu í Stuðlagili í gær. Landsbjörg Kafarar fundu lík manns, sem féll í Stuðlagil í gærkvöldi, í hyl í Jöklu skömmu eftir að þeir fóru ofan í ána. Lögreglustjórinn á Austurlandi segir gott að maðurinn hafi fundist áður en myrkur skall á.
Umfangsmikil björgunaraðgerð hófst eftir að maðurinn féll í Jöklu en tilkynning um slysið barst rúmlega eitt í gærdag. Um hundrað manns komu að leitinni, samkvæmt tilkynningu frá lögreglu. Maðurinn fannst látinn um klukkan 22. Kristmundur Stefán Einarsson, lögreglustjóri á Austurlandi, segir í samtali við Vísi að tildrög andláts mannsins séu enn til rannsóknar en það sé rannsakað sem slys. Samferðamenn meðal vitna Unnið sé að því að taka skýrslur af sjónarvottum, meðal annars samferðamönnum hins látna en hann hafi verið á ferð með hópi fólks en þó ekki á vegum ferðaþjónustufyrirtækis. Þá verði lík mannsins krufið. Rauði kross Íslands hafi verið ræstur út um leið og tilkynnt var um slysið og sinnt áfallahjálp á vettvangi „af myndarskap.“ Aðstæður góðar Kristmundur Stefán segir að aðstæður á vettvangi hafi verið nokkuð góðar og ekki hamlað leitaraðgerðum. Hjálpað hafi til að Hálslón sé ekki komið á yfirfall og því hafi ekki verið mikið í ánni og hún tær. „En aðstæður eru náttúrulega engu að síður þannig að þetta er straumþung á og í henni eru djúpir hylir og vatnið er mjög kalt. Það er í kringum tvær gráður vatnið, þannig að þetta er mikil kæling að fara þarna ofan í vatnið, náttúrulega fyrir viðkomandi og líka fyrir björgunarliða.“ Lík mannsins hafi fundist í hyl á talsverðu dýpi um klukkan 22, rétt áður en myrkur skall á. „Hann finnst mjög fljótt í sjálfu sér, þegar kafararnir koma ofan í og í kjölfarið er hann tekinn hann upp úr. Þetta er að gerast allt þarna á tíunda tímanum í gærkvöldi, svona þegar að myrkrið er að skella á. Það var gott að ná þessu fyrir nóttina.“
Björgunarsveitir Múlaþing Stuðlagil Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira