Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar 25. ágúst 2026 20:15 Já-sinnar í atkvæðagreiðslunni á laugardaginn hafa haldið því mjög fram að atkvæðagreiðslan snúist í raun ekki um inngöngu heldur aðeins um að fá fram samning sem þjóðin taki síðan ákvörðun um í annarri atkvæðagreiðslu. Þetta er ekki ólíkt því sem flestir þekkja frá sölumönnum. Reynt er að koma fætinum inn fyrir dyrnar og bíða með að ræða snúin mál þangað til í blálokin. Þetta kristallast í hinu villandi en grípandi „já til að sjá“ slagorði. Já-hreyfingin er að mestu hætt að færa efnisleg rök fyrir því að ganga í Evrópusambandið heldur reyna þau að sannfæra kjósendur um að það þurfi einmitt ekki að kynna sér málið að neinu ráði, að já-ið snúist aðeins um að fá meiri upplýsingar og nei-ið um að loka á upplýsingar og möguleika. Þannig er almenningur heldur lattur en hvattur til að kynna sér hvað Evrópusambandið er, stofnanir þess, sögu og þróun. Aðeins þarf að kjósa já á laugardag og sjá svo til, þrátt fyrir að verið sé að hefja ferli sem grundvallast á því að umsóknarríkið vilji ganga í sambandið. Flestallt liggur fyrir um ESB Ástæðulaust er að ráðstafa fleiri árum og athygli stjórnmála, stjórnsýslu og almennings í að finna út hversu mikið forræði yfir einstökum málum kynni að vera unnt að halda í með aðild. Uppbygging ESB liggur fyrir, þetta er bandalag 27 ríkja sem þurfa koma sér niður á málamiðlanir í stóru og smáu. Það er meiri óvissa um hverskonar bandalag þetta verður eftir 10-20 ár og ástæðulaust að ætla að mikil tillit verði tekið til sjónarmiða örþjóðar norður í hafi þegar að því kemur að taka ákvarðanir um frekari samruna og miðstýringu Brusselvaldsins. Íslendingum hefur farnast ágætlega á því að hafa svigrúm til þess að haga seglum eftir því hvernig vindar blása hverju sinni bæði í atvinnumálum og alþjóðastjórnmálum. Þá er land okkar fámennt og takmörk fyrir því hvað okkar samfélag, og ekki síst stjórnsýslan, getur beint athygli að mörgum málum í einu. Aðildarviðræður munu taka dýrmæta orku á næstu árum frá ýmsum málaflokkum sem þurfa einfaldlega alla athygli stjórnvalda. Hvernig verður samningurinn kynntur? Miðað við þá óreiðu sem ríkt hefur um grundvallaratriði málsins þá þykir mér ósennilegt að aðildarsamningur muni verða vandlega skýrður og kynntur fyrir Íslendingum, þrátt fyrir fögur fyrirheit. Það hefur ekki einu sinni náðst samstaða í sumar um hvað felist í aðildarviðræðunum, hvort um sé að ræða aðlögun eða samningaviðræður og beinan og óbeinan kostnað við viðræðurnar. Þá þykir mörgum óljóst hvað já hafi í för með sér. Sömuleiðis eru samningsmarkmið ríkisstjórnarinnar óskýr og í sumu torskilin. Er þá nokkur von til þess að samningur verði kynntur og metinn á hlutlægan hátt þegar og ef hann liggur einhvern tímann fyrir? Segðu bara nei Ég vil því biðja þá sem eru ekki beinlínis hlynntir aðild að ESB vinsamlegast að kjósa NEI á laugardag. Þar er ekki verið að loka neinum dyrum. Ísland getur sótt um aðild að ESB seinna ef fyrir liggur vilji þings og þjóðar. Núna liggur fyrir að þingheimur og meira að segja hluti ríkisstjórnarinnar er á móti aðild og mjög tvísýnt um þjóðarviljann. Ekkert liggur á. Þegar sölumenn Kirby ryksuga eða Tupperware banka upp á er best að afþakka kurteislega og hleypa þeim ekki inn. Ef þig vantar ekki ryksugu eða dollur þá er ástæðulaust að hleypa málinu lengra. Ef þú hefur ekki áhuga á aðild að ESB, þá er engin ástæða til að hleypa sölumanninum inn. Segðu bara nei. Höfundur er erfðafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun