Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild skrifar 28. ágúst 2026 07:15 „Ég vil bara sjá hvað er í boði. Það kostar ekkert að kíkja, af hverju megum við ekki bara fá að sjá?“ Þessi orð hafa verið kunnuglegt stef síðustu daga og vikur, hjá þeim sem telja hag Íslands betur borgið innan Evrópusambandsins. Ákvörðuninni um að Ísland gangi inn í yfirþjóðlegt ríkjabandalag, með tilheyrandi framsali á ákvörðunarvaldi og fullveldi, hefur verið líkt við fasteignakaup, stefnumót með frægum einstaklingum, samningi við knattspyrnufélag og lestri á matseðli. Allt er þetta gert til að villa um fyrir ungum kjósendum. Það er ekkert líkt með því að fara á stefnumót með frægum og ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Í grunninn snýst atkvæðagreiðslan á laugardaginn um hvort að við séum tilbúin að taka ákvörðunarvaldið yfir framtíð Íslands af börnum okkar og barnabörnum. Hvort við teljum að evrópskir embættismenn í Brussel séu betri í að stjórna landinu okkar, auðlindunum og gæta okkar hagsmuna heldur en framtíðarkynslóðir þessa lands. Með því að kjósa já á laugardaginn eru skilaboðin þau að evrópskum stjórnmála- og embættismönnum sé betur treystandi fyrir framtíð komandi kynslóða en börnum okkar og barnabörnum. Óháð því hversu vel ríkisstjórninni tekst að semja við Evrópusambandið mun valdið yfir okkar eigin framtíð skerðast með aðild. Það sem meira er, atkvæðavægi Íslands um þær ákvarðanir yrði nær ekkert. Það er óumdeilt að framsal á þessu valdi, lokaorðið um málefni Íslands, verður ekki á samningaborðinu. Það fer frá Íslandi til Brussel. Spurningin er því ekki hvort við viljum eiga samskipti við Evrópu. Ísland á og mun áfram eiga náið samstarf við Evrópuríki. Spurningin sem þú þarft að spyrja þig er hvar þú telur að lokaorðið eigi að vera, hjá valdastofnunum Evrópusambandsins eða hjá íslensku þjóðinni í gegnum Alþingi? Baráttan um framtíð Íslands hefur leitt saman ungt fólk sem er ósammála um ótal margt. Við komum úr ólíkum áttum, höfum ólíkar stjórnmálaskoðanir og sjáum samfélagið með ólíkum augum. En eitt sameinar okkur. Sannfæringin um að Íslendingar eigi sjálfir að ráða framtíð landsins síns. Í þessari baráttu hefur sú sannfæring aðeins orðið sterkari. Fyrri kynslóðir hafa byggt upp farsælt samfélag. Ísland hefur farið úr því að vera eitt fátækasta ríki Evrópu í að vera í fremstu röð þegar kemur að lífskjörum, jafnrétti og friðsæld. Sá árangur varð ekki til af sjálfu sér. Við gerum ekki lítið úr þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir hér á landi. En aðild Íslands að Evrópusambandinu er ekki forsenda þess að við getum leyst þær. Þvert á móti eru þetta verkefni sem við sjálf berum ábyrgð á að leysa með okkar eigin ákvörðunum, á okkar eigin forsendum. Við höfum lært af þeim sem byggðu landið upp og erum traustsins verð. Leyfum framtíðarkynslóðum að eiga lokaorðið. Leyfðu okkur, þínum systrum, bræðrum, börnum og barnabörnum, að fá sömu tækifæri og fyrri kynslóðir til þess að eiga lokaorðið um málefni Íslands, á forsendum Íslands. Framtíðin er björt ef hún verður áfram í okkar höndum. Setjum X við nei. Höfundar: Aðalbjörg Emma Hafsteinsdóttir Aðalheiður Alex Ósk Kristjánsdóttir Alda María Þórðardóttir Aldís Dröfn Ingvarsdóttir Andrea Edda Guðlaugsdóttir Anton Berg Sævarsson Anton Sveinn McKee Árdís Lilja Gísladóttir Aron Ágústsson Atli Ársælsson Atli Dagur Guðmundsson Berglind Haraldsdóttir Berglind Sunna Bragadóttir Birgir Liljar Soltani Birgitta Birgisdóttir Birkir Ólafsson Birkir Óli Gunnarsson Birkir Örn Þorsteinsson Birkir Snær Brynleifsson Birta Karen Tryggvadóttir Björn Gunnar Jónsson Björn Ívar Björnsson Blædís Birna Árnadóttir Bóas Sigurjónsson Böðvar Stefánsson Breki Atlason Bríet Járngerður Bríet Magnúsdóttir Daníel Hjörvar Guðmundsson Dísa Svavarsdóttir Dísa Svövudóttir Dóra Tómasdóttir Einar Arnalds Kristjánsson Einar Freyr Guðmundsson Eiríkur Kúld Viktorsson Elías Baldvinsson Elín Karlsdóttir Elvar Fossdal Embla Kristín Blöndal Emilíana Splidt Fannar Logi Waldorff Sigurðsson Franklín Ernir Kristjánsson Friðrik Júlíus Jósefsson Hólmfríður Gunnarsdóttir Guðfinna Dilja Þorvaldsdóttir Guðmundur Þórir Sigurðsson Guðni Ívar Guðmundsson Guðni Kjartansson Gunnar Ásgrímsson Halla Margrét Hilmarsdóttir Halldór Ísak Ólafsson Halldór Lárusson Heiðar Davíð Wathne Helga Björg Loftsdóttir Helgi Hjaltason Helgi Rafn Bergþórsson Hermann Nökkvi Gunnarsson Hnikar Bjarmi Franklínsson Hrafn Splidt Þorvaldsson Hulda Lind Sævarsdóttir Illugi Gunnarsson Ingveldur Anna Sigurðardóttir Íris E. Gísladóttir Ívar Máni Hrannarsson Jódís Káradóttir Jóhann Árni Sigmarsson Jóhann Daði Gíslason Jón Ferdínand Estherarson Júnía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir Kamilla Kara Brynjarsdóttir Karen Ómarsdóttir Karítas Ríkharðsdóttir Karen Helga Ómarsdóttir Karl Héðinn Kristjánsson Katrín Anna Karlsdóttir Kjartan Leifur Sigurðsson Kjartan Magnússon Kristín Alda Jörgensdóttir Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir Logi Stefánsson Logi Þór Ágústsson Magnea Gná Jóhannsdóttir Magnús Benediktsson Markús Candi Marzuk Ingi Lamshia Svanlaugarson Matthías Bjarnason Mikael Snær Gísladóttir Nína Axeldóttir Nói Þrastarson Oddur Stefánsson Óðinn Flóki Þorgeirsson Roff Oliver Nordquist Pétur Orri Pétursson Ragnar Óskarsson Ragnheiður Arnarsdóttir Ragnhildur Björt Björnsdóttir Róbert Smári Gunnarsson Salka Sverrisdóttir Salma Björk Önnudóttir Sandra Hafsteinsdóttir Signý Pála Pálsdóttir Sigurður Erlends Guðbjargarson Sólrún Lára Flóvenz Stefán Atli Stefán Örn Ingvarsson Olsen Steinar Ingi Kolbeins Stephanie Sara Drífudóttir Styrmir Jökull Einarsson Sveinn Ægir Birgisson Sveinn Sigurbjarnarson Tinna Eyvindardóttir Tómas Orri Tryggvason Tristan Fjeldsted Úlfur Ægir Halldórsson Unnur Elín Sigursteinsdóttir Walter Fannar Kristjánsson Ýmir Örn Hafsteinsson Þórdís Arna Bjarkarsdóttir Þórður Hugo Björnsson Þórhildur Pálsdóttir Þorkell Ingólfsson Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Skoðun Skoðun Á matur að vera ódýr? Sæmundur Jón Jónsson skrifar Skoðun Baráttan um Ísland Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þarf þolandinn alltaf að færa sig? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Er erfitt að taka ákvörðun? Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Hugrekki til að breyta Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Ósýnileg stjórnarskrárákvæði Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson skrifar Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæði-til hvers ? Egill Þórir Einarsson skrifar Skoðun Er Ísland nógu gott fyrir Evrópu? Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar Skoðun Umræðan í aðdraganda kosninga Geir Rögnvaldsson skrifar Skoðun Suðurlandi allt Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild skrifar Skoðun Nei við ESB er ekki nei við Evrópu Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Kjörklefinn er síðasti hlekkurinn, ekki sá fyrsti Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson skrifar Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar