Er Ísland nógu gott fyrir Evrópu? Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar 28. ágúst 2026 08:31 Í umræðunni um Evrópusambandið spyrjum við stöðugt hvað Evrópa geti gert fyrir Ísland. Hvað verður um krónuna? Sjávarútveginn? Landbúnaðinn? Hvað fáum við og hverju þurfum við að fórna? En kannski ættum við líka að spyrja öfugt. Hvers myndi Evrópa krefjast af Íslandi? Ég bjó lengi á Spáni og kynntist samfélagi þar sem spilling var á sínum tíma sýnileg og mörkin milli kunningsskapar, greiða, valds og hreinnar spillingar gátu orðið óþægilega óskýr. Ég þekkti það ekki bara af fréttum. Ég sá þessa menningu í kringum mig. Spánn er ekki laus við spillingu í dag. En breytingin sem ég hef séð er gríðarleg. Viðhorfið hefur breyst og aðhaldið er allt annað. Rannsóknir á spillingu ná til stjórnmálamanna, embættismanna og sveitarstjórna. Vald á ekki að veita skjól frá rannsókn. Og þá komum við að Íslandi. Ísland er heldur ekki laust við spillingu. Við erum örsamfélag þar sem fólk þekkist, fjölskyldur tengjast og stjórnmál, stjórnsýsla og atvinnulíf skarast. Smæðin hefur marga kosti en hún getur líka skapað kunningjasamfélag þar sem erfitt verður að veita valdinu raunverulegt aðhald. Þess vegna eigum við að þora að spyrja óþægilegra spurninga. Er eftirlitið með stjórnsýslunni nægilega öflugt? Hefur lögregla næga sérþekkingu og sjálfstæði til að rannsaka spillingu? Er faglegt aðhald innan réttarkerfisins nægilegt? Og erum við tilbúin að rannsaka valdið þegar rannsóknin beinist að fólki sem sjálft tilheyrir valdakerfinu? ESB er engin töfralausn gegn spillingu. Spilling finnst innan sambandsins eins og annars staðar. En réttarríki, sjálfstæði stofnana, góð stjórnsýsla og barátta gegn spillingu eru meðal þeirra grundvallaratriða sem ríki þurfa að standast þegar þau sækjast eftir aðild. Kannski er það einmitt hluti umræðunnar sem við höfum vanrækt. Við höfum þegar fengið mikið frá evrópskri samvinnu. EES, Schengen, Erasmus og ótal réttindi sem okkur þykja nú sjálfsögð. En samstarf snýst ekki bara um hvað við fáum. Það snýst líka um hvaða kröfur eru gerðar til okkar. Kannski er spurningin því ekki aðeins hvað Evrópa getur gert fyrir Ísland. Kannski eigum við líka að þora að spyrja hvort meira utanaðkomandi aðhald, meira gagnsæi og meiri krafa um sjálfstæði stofnana gæti gert Íslandi gott. Er Ísland nógu gott fyrir Evrópu? Eða erum við kannski hræddari við þá spurningu en við viljum viðurkenna? Ég segi Já, því ég vil m.a. minni spillingu en aðalega vil ég sjá hvað er í boði. Guðmundur Ingi Þóroddsson Höfundur er formaður Afstöðu-réttindafélags og sérhæfður í Evrópskum fangelsismálum Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Guðmundur Ingi Þóroddsson Mest lesið Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Skoðun Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson skrifar Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæði-til hvers ? Egill Þórir Einarsson skrifar Skoðun Er Ísland nógu gott fyrir Evrópu? Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar Skoðun Umræðan í aðdraganda kosninga Geir Rögnvaldsson skrifar Skoðun Suðurlandi allt Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild skrifar Skoðun Nei við ESB er ekki nei við Evrópu Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Kjörklefinn er síðasti hlekkurinn, ekki sá fyrsti Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson skrifar Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Sjá meira
Í umræðunni um Evrópusambandið spyrjum við stöðugt hvað Evrópa geti gert fyrir Ísland. Hvað verður um krónuna? Sjávarútveginn? Landbúnaðinn? Hvað fáum við og hverju þurfum við að fórna? En kannski ættum við líka að spyrja öfugt. Hvers myndi Evrópa krefjast af Íslandi? Ég bjó lengi á Spáni og kynntist samfélagi þar sem spilling var á sínum tíma sýnileg og mörkin milli kunningsskapar, greiða, valds og hreinnar spillingar gátu orðið óþægilega óskýr. Ég þekkti það ekki bara af fréttum. Ég sá þessa menningu í kringum mig. Spánn er ekki laus við spillingu í dag. En breytingin sem ég hef séð er gríðarleg. Viðhorfið hefur breyst og aðhaldið er allt annað. Rannsóknir á spillingu ná til stjórnmálamanna, embættismanna og sveitarstjórna. Vald á ekki að veita skjól frá rannsókn. Og þá komum við að Íslandi. Ísland er heldur ekki laust við spillingu. Við erum örsamfélag þar sem fólk þekkist, fjölskyldur tengjast og stjórnmál, stjórnsýsla og atvinnulíf skarast. Smæðin hefur marga kosti en hún getur líka skapað kunningjasamfélag þar sem erfitt verður að veita valdinu raunverulegt aðhald. Þess vegna eigum við að þora að spyrja óþægilegra spurninga. Er eftirlitið með stjórnsýslunni nægilega öflugt? Hefur lögregla næga sérþekkingu og sjálfstæði til að rannsaka spillingu? Er faglegt aðhald innan réttarkerfisins nægilegt? Og erum við tilbúin að rannsaka valdið þegar rannsóknin beinist að fólki sem sjálft tilheyrir valdakerfinu? ESB er engin töfralausn gegn spillingu. Spilling finnst innan sambandsins eins og annars staðar. En réttarríki, sjálfstæði stofnana, góð stjórnsýsla og barátta gegn spillingu eru meðal þeirra grundvallaratriða sem ríki þurfa að standast þegar þau sækjast eftir aðild. Kannski er það einmitt hluti umræðunnar sem við höfum vanrækt. Við höfum þegar fengið mikið frá evrópskri samvinnu. EES, Schengen, Erasmus og ótal réttindi sem okkur þykja nú sjálfsögð. En samstarf snýst ekki bara um hvað við fáum. Það snýst líka um hvaða kröfur eru gerðar til okkar. Kannski er spurningin því ekki aðeins hvað Evrópa getur gert fyrir Ísland. Kannski eigum við líka að þora að spyrja hvort meira utanaðkomandi aðhald, meira gagnsæi og meiri krafa um sjálfstæði stofnana gæti gert Íslandi gott. Er Ísland nógu gott fyrir Evrópu? Eða erum við kannski hræddari við þá spurningu en við viljum viðurkenna? Ég segi Já, því ég vil m.a. minni spillingu en aðalega vil ég sjá hvað er í boði. Guðmundur Ingi Þóroddsson Höfundur er formaður Afstöðu-réttindafélags og sérhæfður í Evrópskum fangelsismálum
Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar