Vísbendingar um aukna kjörsókn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa 29. ágúst 2026 12:16 Eva B. Helgadóttir er formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík. Vísir/Óttar Kjörsókn í Reykjavík mælist meiri en á sama tíma í síðustu alþingiskosningum. Formaður yfirkjörstjórnar segir þó ekki mikið um raðir á kjörstöðum. Von er á fyrstu tölum úr Reykjavík upp úr miðnætti.
29. ágúst er runninn upp, dagurinn sem Íslendingar segja nei eða já við því að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Kjörstaðir voru opnaðir klukkan níu í morgun og mælist kjörsókn strax góð. „Við erum að sjá hærri tölur en á sama tíma í síðustu alþingiskosningum þannig að það eru vísbendingar um aukna kjörsókn,“ segir Eva B. Helgadóttir, formaður yfirkjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis norður. Klukkan ellefu var kjörsókn í kjördæminu 8,16 prósent samanborið við 5,18 prósent á sama tíma í síðustu þingkosningum. Í Reykjavíkurkjördæmi Suður var kjörsókn klukkan ellefu 8,49 prósent en 5,65 prósent á sama tíma í síðustu þingkosningum. Eva segir ekki langar raðir á kjörstöðum og að allt gangi smurt. Ómögulegt sé að segja til um hvenær dags flestir leggi leið sína á kjörstað. „Mér sýnist að hápunkturinn sé svona um tvöleytið eða eitthvað svoleiðis en það er ómögulegt að segja. Þetta er aðeins öðruvísi en síðustu alþingiskosningar, þannig þetta er eitthvað sem er erfitt að segja nákvæmlega til um.“ Atkvæði úr báðum Reykjavíkurkjördæmum verða talin í Laugardalshöll og er von á þeim á milli klukkan tólf og eitt í nótt. „Og það er auðvitað bara áætlun en vonandi gengur allt það vel að við getum staðið við það plan.“ Tölur verða gefnar út þrisvar yfir nóttina og segir Eva að fyrstu tölur ættu að gefa ágætis mynd af stöðunni. „Já, við erum að vona það, það eru kassaskipti um fimmleytið. Fyrstu tölur verða atkvæðin sem verða komin í hús á þeim tímapunkti. Aðrar tölur verða restin af þeim sem mættu á kjörfundinn og lokatölur með heildinni og líka þá utankjörfundaratkvæði,“ sagði Eva. Fyrstu tölur um miðnætti Ari Karlsson, formaður kjörnefndar Norðvesturkjördæmis, ræddi við Elísabetu Ingu í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Við vorum að safna kjörsókn í klukkan 11:30 og þá höfðu 15,58 prósent kosið. Það er töluvert meira en í síðustu alþingiskosningum þegar kjörsókn var 10,96 prósent,“ segir hann. Sömuleiðis sé rúmu fimmtán prósentin ívið meiri kjörsókn en í forsetakosningunum. Hann hafi ekki tekið eftir löngum röðum á kjörstað í Borgarnesi og hafi kosningarnar í kjördæminu heilt yfir gengið vel. „Við söfnum kössum seinnipartinn fyrir fyrstu tölur og við búumst við að þær liggi fyrir um miðnætti,“ segir Ari. Töluverðan tíma tekur að keyra atkvæðin á Vestfjörðum og gert er ráð fyrir að þau komi í hús um klukkan tvö í nótt. Því er reiknað með lokatölum á milli sex og sjö í fyrramálið. „Það er met í utankjörfundaratkvæðagreiðslu,“ segir hann. „Þegar það er mikið getur uppgjörið í lok kjördagsins tekið lengri tíma og það getur tekið lengri tíma.“ Fleiri greiða atkvæði fyrr Klukkan ellefu í morgun höfðu 7,5 prósent greitt atkvæði í Suðvesturkjördæmi sem er, líkt og í hinum kjördæmunum, töluvert meira en í síðustu kosningum. Í alþingiskosningunum árið 2024 höfðu 6,1 prósent greitt atkvæði á sama tíma. Kjörsókn í Suðurkjördæmi klukkan ellefu var þá 9,61 prósent.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Sjá meira