Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 30. ágúst 2026 21:11 Hart var tekist á í Silfrinu í kvöld. Vísir/Samsett Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra skoraði á Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, að gerast fyrsti flutningsmaður frumvarps um bókun 35 við EES-samningsins. Sigmundur tók ekki vel í hugmyndina. Formenn flokkanna á Alþingi ræddu niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðsluna í gær í sérstökum þætti Silfursins á RÚV. Þar var eins og gefur að skilja snert á ýmsu og var gestum heitt í hamsi enda ólíkar meiningar um þýðingu úrslitanna. Þegar framtíð hagsmunagæslu og Evrópusamstarfs var til umræðu sagði Þorgerður Katrín að kosningabaráttan hefði látið það í ljós að flokkarnir á þingi stæðu saman um EES-samninginn. Óháð niðurstöðu gærdagsins, þyrfti Ísland að standa við sínar skuldbindingar og ekki sé hægt að umgangast samninginn eins og „einhvern konfektkassa“. „Þetta er það sem ég óttaðist“ Hún sagði sig hafa talið að aukin samstaða væri komin um EES-samninginn og vísaði meðal annars til afstöðu Miðflokksins. Því væri tilvalið að flokkurinn sýndi þá samstöðu í verki, og þá varð hinum gestum þáttarins eflaust ljóst í hvað stefndi. „Kannski er bara best, til þess að sýna samstöðuna með EES-samningnum, að Sigmundur eða Guðrún verði fyrstu flutningsmenn bókunar 35,“ sagði Þorgerður. Sigmundur Davíð svaraði að bragði: „Þú ert varla að fara að keyra bókun númer 35 inn núna.“ Bókun 35 hefur verið hluti af EES-samningnum frá því hann tók gildi 1. janúar 1994 og fjallar í meginatriðum um þá skyldu Íslands, Noregs og Liechtenstein að tryggja stöðu rétt innleiddra EES-reglna gagnvart öðrum landslögum, svo fólk og fyrirtæki fái notið réttar síns samkvæmt EES-samningnum. Bókunin nær hins vegar ekki til ákvæða stjórnarskrár. Til þess að EES-reglur geti tekið gildi á Íslandi þurfa þær að verða hluti af íslenskum lögum. Alþingi gerir það með því að setja lög. Stundum hefur Alþingi sett önnur lög sem rekast á við lög sem gera EES-reglur að íslenskum reglum. Þá þurfa dómstólar að ákveða hvor lögin eiga að gilda. Bókun 35 fjallar um hvernig á að leysa úr því þegar lög sem gera EES-reglur að íslenskum reglum rekast á við aðrar íslenskar reglur. Þá eiga lögin sem gera EES-reglurnar að íslenskum reglum að gilda. Með því að samþykkja ný lög um bókun 35 yrði öðrum en Alþingi ekki gefið leyfi til að setja lög á Íslandi. Alþingi setti áfram lögin á Íslandi. Alþingi getur alltaf ákveðið að setja lög sem brjóta gegn EES-reglum. Þorgerður sagðist þá óttast að stuðningur við EES-samninginn hefði ekki verið jafn eindreginn og gefið hefði verið í skyn. „Þetta er það sem ég óttaðist. Að þetta hafi bara verið ykkur orðin tóm,“ sagði hún. Sagði hún auðvelt hafa verið að „skýla sér á bak við EES-málið“, en þegar kæmi að því að standa vörð um samninginn væru menn ekki endilega tilbúnir til þess. „Mér finnst það umhugsunarefni,“ sagði hún. Ferðir til Kína og Kanada fram undan Þorgerður sagði jafnframt að Ísland þyrfti að herða hagsmunagæslu sína gagnvart erlendum ríkjum og ríkjasamböndum. Tollar og aðrar viðskiptahindranir væru í auknum mæli notaðar sem pólitísk stjórntæki og EES-samningurinn næði ekki til alls slíks. Hún nefndi Kanada sem dæmi um ríki sem sækti nú aukið skjól í nánari samskiptum við Evrópusambandið og sagði íslensk stjórnvöld einnig ætla að auka samskipti við fleiri ríki. Þorgerður sagðist sjálf ætla til Kína síðar á árinu og að einnig væri horft til aukinna samskipta við Kanada. „Við þurfum að klukka alla,“ sagði hún. Hún sagði verkefnið fram undan skýrt. Að standa þyrfti vörð um EES-samninginn og gæta íslenskra hagsmuna, hvort sem væri á sviði viðskipta, varnar- eða öryggismála. Bókun 35 Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Miðflokkurinn Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira
Formenn flokkanna á Alþingi ræddu niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðsluna í gær í sérstökum þætti Silfursins á RÚV. Þar var eins og gefur að skilja snert á ýmsu og var gestum heitt í hamsi enda ólíkar meiningar um þýðingu úrslitanna. Þegar framtíð hagsmunagæslu og Evrópusamstarfs var til umræðu sagði Þorgerður Katrín að kosningabaráttan hefði látið það í ljós að flokkarnir á þingi stæðu saman um EES-samninginn. Óháð niðurstöðu gærdagsins, þyrfti Ísland að standa við sínar skuldbindingar og ekki sé hægt að umgangast samninginn eins og „einhvern konfektkassa“. „Þetta er það sem ég óttaðist“ Hún sagði sig hafa talið að aukin samstaða væri komin um EES-samninginn og vísaði meðal annars til afstöðu Miðflokksins. Því væri tilvalið að flokkurinn sýndi þá samstöðu í verki, og þá varð hinum gestum þáttarins eflaust ljóst í hvað stefndi. „Kannski er bara best, til þess að sýna samstöðuna með EES-samningnum, að Sigmundur eða Guðrún verði fyrstu flutningsmenn bókunar 35,“ sagði Þorgerður. Sigmundur Davíð svaraði að bragði: „Þú ert varla að fara að keyra bókun númer 35 inn núna.“ Bókun 35 hefur verið hluti af EES-samningnum frá því hann tók gildi 1. janúar 1994 og fjallar í meginatriðum um þá skyldu Íslands, Noregs og Liechtenstein að tryggja stöðu rétt innleiddra EES-reglna gagnvart öðrum landslögum, svo fólk og fyrirtæki fái notið réttar síns samkvæmt EES-samningnum. Bókunin nær hins vegar ekki til ákvæða stjórnarskrár. Til þess að EES-reglur geti tekið gildi á Íslandi þurfa þær að verða hluti af íslenskum lögum. Alþingi gerir það með því að setja lög. Stundum hefur Alþingi sett önnur lög sem rekast á við lög sem gera EES-reglur að íslenskum reglum. Þá þurfa dómstólar að ákveða hvor lögin eiga að gilda. Bókun 35 fjallar um hvernig á að leysa úr því þegar lög sem gera EES-reglur að íslenskum reglum rekast á við aðrar íslenskar reglur. Þá eiga lögin sem gera EES-reglurnar að íslenskum reglum að gilda. Með því að samþykkja ný lög um bókun 35 yrði öðrum en Alþingi ekki gefið leyfi til að setja lög á Íslandi. Alþingi setti áfram lögin á Íslandi. Alþingi getur alltaf ákveðið að setja lög sem brjóta gegn EES-reglum. Þorgerður sagðist þá óttast að stuðningur við EES-samninginn hefði ekki verið jafn eindreginn og gefið hefði verið í skyn. „Þetta er það sem ég óttaðist. Að þetta hafi bara verið ykkur orðin tóm,“ sagði hún. Sagði hún auðvelt hafa verið að „skýla sér á bak við EES-málið“, en þegar kæmi að því að standa vörð um samninginn væru menn ekki endilega tilbúnir til þess. „Mér finnst það umhugsunarefni,“ sagði hún. Ferðir til Kína og Kanada fram undan Þorgerður sagði jafnframt að Ísland þyrfti að herða hagsmunagæslu sína gagnvart erlendum ríkjum og ríkjasamböndum. Tollar og aðrar viðskiptahindranir væru í auknum mæli notaðar sem pólitísk stjórntæki og EES-samningurinn næði ekki til alls slíks. Hún nefndi Kanada sem dæmi um ríki sem sækti nú aukið skjól í nánari samskiptum við Evrópusambandið og sagði íslensk stjórnvöld einnig ætla að auka samskipti við fleiri ríki. Þorgerður sagðist sjálf ætla til Kína síðar á árinu og að einnig væri horft til aukinna samskipta við Kanada. „Við þurfum að klukka alla,“ sagði hún. Hún sagði verkefnið fram undan skýrt. Að standa þyrfti vörð um EES-samninginn og gæta íslenskra hagsmuna, hvort sem væri á sviði viðskipta, varnar- eða öryggismála.
Bókun 35 hefur verið hluti af EES-samningnum frá því hann tók gildi 1. janúar 1994 og fjallar í meginatriðum um þá skyldu Íslands, Noregs og Liechtenstein að tryggja stöðu rétt innleiddra EES-reglna gagnvart öðrum landslögum, svo fólk og fyrirtæki fái notið réttar síns samkvæmt EES-samningnum. Bókunin nær hins vegar ekki til ákvæða stjórnarskrár. Til þess að EES-reglur geti tekið gildi á Íslandi þurfa þær að verða hluti af íslenskum lögum. Alþingi gerir það með því að setja lög. Stundum hefur Alþingi sett önnur lög sem rekast á við lög sem gera EES-reglur að íslenskum reglum. Þá þurfa dómstólar að ákveða hvor lögin eiga að gilda. Bókun 35 fjallar um hvernig á að leysa úr því þegar lög sem gera EES-reglur að íslenskum reglum rekast á við aðrar íslenskar reglur. Þá eiga lögin sem gera EES-reglurnar að íslenskum reglum að gilda. Með því að samþykkja ný lög um bókun 35 yrði öðrum en Alþingi ekki gefið leyfi til að setja lög á Íslandi. Alþingi setti áfram lögin á Íslandi. Alþingi getur alltaf ákveðið að setja lög sem brjóta gegn EES-reglum.
Bókun 35 Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Miðflokkurinn Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira