Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 1. september 2026 08:17 Hannes Hólmsteinn Gissurarson gerði upp málin í Bítinu. Vísir/Vilhelm Hannes Hólmsteinn Gissurarsson prófessor emeritus í stjórnmálafræði segir fréttir af því að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna vera úr lausu lofti gripnar. Styrkir sem hann hafi útvegað hafi farið í bókaútgáfu en ekki í baráttu fyrir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu.
Þetta er meðal þess sem fram kom í Bítinu á Bylgjunni. Þar vísaði Hannes í fréttaflutning Ríkisútvarpsins þar sem vísað er til umfjöllunar hollenska miðilsins Follow the Money um að fyrirtæki í eigu Hannesar hafi verið meðal íslenskra fyrirtækja sem hafi styrkt hugveitur hlynntar Brexit. Upphæðin hafi numið alls um fimmtíu þúsund evrum á árunum 2014 til 2017, því sem jafngildi sjö milljónum íslenskra króna á gengi dagsins í dag. „Ég get nú ekki annað en hlegið að því, að þeir birtu frétt um það, án þess að tala við mig að erlend heimasíða sem heitir Follow the money hefði komist að því að ég hefði veitt stórfé í Brexit baráttuna í Bretlandi. Þetta er allt úr lausu lofti gripið og alveg fráleitt. Þetta var bara birt athugasemdalaust,“ segir Hannes um málið í Bítinu. „Þegar þú lest hinsvegar erlendu heimasíðuna þá kemur nú eiginlega ekkert fram um þetta. Það kemur bara fram að ég hafði milligöngu um það að útvega styrki til ákveðinnar stofnunar, sem hét Institute of Direct Democracy of Europe, IDDE frá íslenskum fyrirtækjum. Og síðan er bara sagt að þessi stofnun hafi líka tekið þátt í Brexit.“ Hannes fullyrðir að sannleikurinn sé hinsvegar sá að hann hafi útvegað styrki í ákveðið verkefni sem hafi verið fólgið í því að gefa út átta bækur undir merkjum Evrópu fórnarlambanna. Verkefnið sé fólgið í því að minnast fórnarlamba alræðisstefnunnar í Evrópu og hafi meðal annars gefið út bók sem hafi innihaldið greinar um kommúnisma eftir Bertrand Russell og bókina Konur í þrælakistum Stalíns eftir Elinor Lipper og Aino Kuusinen, ásamt fleiri bókum. „Við endurútgáfum þessar bækur með formálum eftir mig og í þetta fóru þessir peningar og þess er vandlega getið í bókunum að þetta hafi verið gert í samstarfi við IDDE og Brexit kom ekkert nálægt þessu, það er ekkert sem tengir þetta framtak við Brexit. Og sannleikurinn er sá, af því ég hef rekið nokkrar hugveitur með Ragnari og einn og svo framvegis, ég hef útvegið fjármagn frá íslenskum fyrirtækjum, það eru nefnd nokkur í útvarpsfréttinni eins og Brim og Hval og Ísfélaginu og fleirum og Almenna bókafélaginu og Almenna bókafélagið var sá sem gaf þetta út. Þannig það var bara ekkert athugavert við þetta og tengdist ekkert Brexit en fyrirsagnirnar voru um það að íslensk útgerðarfyrirtæki hefðu stutt Brexit baráttuna, alveg fráleitt, úr lausu lofti gripið.“ Þannig það kom enginn beinn fjárstuðningur frá þér í baráttuna í Brexit? „Nei, alls ekki. Enda er þetta þeirra barátta, mér myndi ekki detta í hug að taka þátt í því að safna peningum á Íslandi fyrir baráttu í Bretlandi, fyrir úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu. Það kemur okkur ekkert við.“
Brexit Evrópusambandið Bítið Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Erlent Fleiri fréttir Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Sjá meira