Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Valur Páll Eiríksson skrifar 5. september 2026 10:00 Aron deildi myndskeiðinu úr Spiideo myndavél á KR-vellinum á Instagram síðu sinni. Skjáskot/Vísir/Hulda Margrét Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, deildi myndskeiði af Oliver Ekroth, fyrirliða Víkings, að hlaupa harkalega utan í sig er Víkingur fagnaði marki sínu gegn KR í 1-1 jafntefli liðanna á dögunum.
Rígur milli Víkings og KR virðist fara vaxandi. Aron hefur kynt upp í þeim ríg með ummælum sem vakið hafa athygli. Annars vegar fyrir leik Víkings við Borac í Sambandsdeildinni þar sem hann sagði framtíð félagsins í húfi vegna þess hve hátt boginn hefði verið spenntur upp á að komast í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar. Klippa: Ekroth keyrir utan í Aron Sig Fyrir leik liðanna í vikunni frömdu einhverjir stuðningsmenn Víkings þá skemmdarverk á Meistaravöllum þar sem þeir máluðu nafn Víkings á stúkuvegg og á varamannaskýli auk þess að hella málningu víða. Hart var barist í leiknum sem lauk með 1-1 jafntefli. Víkingur komst yfir í uppbótartíma og í blálok hans jafnaði KR. Lögregla hafði þá afskipti af stuðningsmönnum Víkings á meðan leik stóð vegna trommuláta, en trommur eru bannaðar á vellinum samkvæmt reglum KR-inga. Eftir að leik lauk sagði Aron meðal annars: „Þeir eru bara bensínlausir, haltrandi. Ef þeir ná að haltra í áttina að þessum titli þá bara fair play á þá. Þeir eru með besta lið á landinu á hælunum.“ Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, sagði lítið vit í því sem Aron hefði að segja og sagði ummælin ekki svaraverð. Aron hefur þó ekki sagt sitt síðasta og birti í sögu á Instagram-síðu sinni í gærkvöldi myndskeið af því er Oliver Ekroth hljóp heldur harkalega utan í Aron, að því er virtist viljandi, er Víkingar fögnuðu marki sínu seint í leiknum. Myndskeiðið má sjá í spilaranum efst.
KR Víkingur Reykjavík Besta deild karla Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira