Neytendur

Dauð­brá þegar hún beit ó­vænt í gler­brot

Agnar Már Másson skrifar
Lína Björg ætlaði sér bara að fá sér smjör, ost og smá sultu á beygluna.
Lína Björg ætlaði sér bara að fá sér smjör, ost og smá sultu á beygluna. Samsett Mynd

Línu Björgu Tryggvadóttur brá verulega í gærkvöldi þegar hún beit óvænt í glerbrot þegar hún var að borða beyglu. Hún segir að ónotatilfinning hafi gripið um sig eftir að hún áttaði sig á því að hún hefði kyngt glerbroti. Hún hafi verið heillengi að veiða glerbrot úr kjaftinum.

Hún lenti í þessu í gærkvöldi.

„Ég sem sagt fékk mér beyglu, bara svona amerískar beyglur sem eru frá Aðföngum, setti smjör og ost og smá sultu ofan á,“ segir Lína en innihald og álegg beyglunnar væri nú ekki í frásögur færandi ef ekki væri fyrir það sem gerðist næst:

„Svo er ég búin að borða sko bara hálfa beygluna. Þá bít ég í eitthvað, eitthvað hart.“

Linda segist þá hafa hugsað með sér hvort það væri eitthvað skrýtið við sultuna.

Glerbrotið má sjá á myndinni hér.Samsett Mynd

„Ég svona finn alveg bara að ég bryð eitthvað, og ég kyngi því einhvern veginn og tek næsta bita,“ segir hún. „Og þá fæ ég bara stórt glerbrot upp í mig.“

Hún hafi verið heillengi að ná brotinu úr munninum á sér. 

„Þá finn ég það og ég alveg bara spýti út úr mér í vaskinn og bara og finn þetta glerbrot.“

Hún kveðst hafa sent póst á Aðföng í gærkvöldi, sem flytja inn beyglurnar frá Bandaríkjunum, vegna málsins. „En það er náttúrulega bara helgi, þannig að ég skil vel að þau séu ekki búin að hafa samband við mig,“ bætir hún við.

Eftir atvikið hafi hún farið að finna fyrir ónotatilfinningu og hringt á Læknavaktina þar sem henni var svo ráðlagt að fara á bráðamóttöku.

„Þetta var bara eitthvað svo ógeðslegt,“ bætir hún við. Á bráðamóttökunni hafi henni verið sagt að fylgjast með einkennum eins og blóði í uppköstum eða hægðum.

Lína telur sig þó hafa ælt upp fyrra glerbrotinu vegna ógleði við tilhugsunina um að hafa kyngt glerbrotinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×