Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Valur Páll Eiríksson skrifar 5. september 2026 16:00 Elfar Árni Aðalsteinsson hefur farið fyrir Völsungi og skoraði annað markið í dag. mynd/Hafþór Hreiðarsson Völsungur náði á ótrúlegan hátt að halda sæti sínu í Lengjudeild karla í fótbolta. Grindavík er fallin í 2. deild.
Fyrir umferðina var ljóst að Afturelding myndi fara upp í Bestu deildina í kjölfar sigurs liðsins síðustu helgi. Ægir var þá fallinn en mikil spenna um það hvaða lið myndi fylgja Þorlákshafnarliðum niður í 2. deild. Þrjú lið gátu fallið; Völsungur, sem var með 23 stig í fallsæti, Grindavík sem var með 24 stig, og ÍR sem var með 25 stig. Völsungur þurfti því sigur og treysta á að annað hvort Grindavík eða ÍR myndu misstíga sig til að halda sæti sínu. Húsvíkingar sóttu Gróttu heim á Seltjarnarnes og skemmst frá því að segja að þeir gerðu sitt og unnu 2-0 sigur þökk sé mörkum Fernando Jimenez og Elfars Árna Aðalsteinssonar. ÍR kláraði einnig sitt. Vann 3-2 sigur á Leikni í grannaslag í Breiðholti. ÍR-ingar náðu 3-0 forystu snemma og þeirra staða aldrei í mikilli hættu, þó eflaust hafi farið um margan þegar Leiknir minnkaði muninn í 3-2. Það urðu úrslitin og Leiknismönnum tókst ekki að fella granna sína. Flestir hefðu þá eflaust dauðadæmt Völsunga niður enda átti Grindavík eftir auðveldasta verkefnið á pappír, gegn föllnu Ægisliði sem hafði tapað tíu leikjum í röð og fengið á sig 20 mörk í þremur leikjum þar á undan. Það hafðist ekki hjá Grindvíkingum. Heiðar Snær Ragnarsson hafði komið liðinu yfir eftir kortersleik en mark Daníels Karls Ragnarssonar á 62. mínútu þýddi að liðin gerðu 1-1 jafntefli og Ægir tók Grindavík með sér niður í 2. deild. Viðsnúningur Völsungs Völsungur vann aðeins einn leik af fyrstu 14 sem þeir spiluðu í deildinni og voru fyrr í sumar geirnegldir niður með Ægismönnum þar sem þau tvö lið voru lang neðst í deildinni. Ótrúleg spilamennska og barátta hefur hins vegar skilað liðinu sex sigrum í síðustu átta leikjum tímabilsins og liðið því áfram í næst efstu deild. Önnur úrslit urðu á þá leið að HK vann 2-1 sigur á Fylki, Njarðvík vann meistara Aftureldingar 2-1 og Þróttur vann 2-0 útisigur á Vestra. Fram undan er umspil um það hvaða lið fylgir Aftureldingu upp. Þróttur mun mæta Njarðvík í öðru undanúrslitaeinvíginu og Fylkir mætir HK í hinu.
Lengjudeild karla Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira