„Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ Árni Gísli Magnússon skrifar 6. september 2026 16:50 Þorri átti góðan leik í þorpinu í dag. Þór vann mikilvægan 1-0 sigur á FH á VÍS-vellinum á Akureyri í 22. umferð Bestu deildar karla og jafnframt þeirri síðustu fyrir skiptingu deildarinnar í efri og neðri hluta.
Þór fer upp að hlið FH í töflunni með 21 stig en lakari markatölu og er því í tíunda sæti. Þorri Ingólfsson, 17 ára lánsmaður frá Víkingi, skoraði eina mark leiksins á 59. mínútu eftir vel útfærða sókn. Hann var eðlilega ánægður með sigurinn og markið í dag. „Bara mjög góðar. Geggjað að skora fyrsta markið mitt bara í Bestu deildinni og líka fyrir Þór. Líður mjög vel, geggjað.“ Búinn að ákveða fagnið Þorri fagnaði markinu vel og innilega með stuðningsmönnum Þórs. „Þetta var geggjað sko, ég var búinn að ákveða fagn fyrir leikinn, ég steingleymdi því í augnablikinu bara alveg. Ég eiginlega bara svona fraus, þetta var bara geðveikt sko.“ „Við erum búnir að tala um inni í klefa að taka sömu orku og í síðasta leik á móti ÍBV, við vorum með mjög hátt orkustig í þeim leik. Þetta var svona eftir Stjörnuleikinn duttum við aðeins niður í honum. Við komum með mjög gott orkustig inn í þennan leik, vorum bara eins og við værum stærri, sterkari, fljótari, bara á undan í alla bolta fannst mér og mér fannst þeir aldrei líklegir til að fara að skora eitthvað mark. Mér fannst við bara miklu betri allan leikinn. Við vorum líka í endann miklu líklegri til að bæta við.“ Þórsarar hafa nú unnið tvo leiki í röð þar síðasti leikur var 1-0 sigur gegn ÍBV á útivelli. Þetta er í fyrsta sinn í sumar sem Þór tengir saman sigra. „Þetta er í fyrsta sinn á tímabilinu held ég sem Þór tengir tvo sigra þannig að þetta er bara geggjað. Þetta var svona eiginlega sex stiga leikur.“ Þór er í tíunda sæti eftir hefðbundna deildarkeppni en nú tekur úrslitakeppni við þar sem leikið er gegn hinum fimm liðunum í neðri hlutanum. „Veit það ekki, þetta verður helvíti tæpt en við erum bara með drullugott lið núna og erum á góði róli þannig að ég held að við getum alveg farið og unnið restina af þessum leikjum,“ sagði Þorri að lokum.
Besta deild karla Þór Akureyri Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira