„Slakasta spilamennska okkar í sumar“ Hjörvar Ólafsson skrifar 6. september 2026 16:56 Óskar Hrafn að öskra skipanir til sinna manna. Vísir / Anton Brink Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var hreinskilinn aðpurður um hvernig hann súmmeraði upp frammistöðu síns liðs í 3-1 tapinu gegn ÍA í Bestu-deild karla í fótbolta í dag. „
Það vantaði mikið upp á orkustigið hjá KR-liðinu í þessum leik og við komumst eiginlega aldrei í takt við hann. Þetta er líklega slakasta spilamennska okkar í sumar,“ sagði Óskar Hrafn að leik loknum. „Við vorum undir í návígjum og þeir voru grimmari í alla bolta. Það kann aldrei góðri lukku að stýra þegar þú spilar við Skagamenn. Það kom smá líf í okkur í kringum markið sem við skorum en það var of lítið og það hefði ekki verið sanngjarnt ef við hefðum jafnað og stolið stigi,“ sagði Óskar Hrafn þar að auki. „Þessi leikur er áminnig um það að við þurfum að hafa fulla orku í liðinu og meiri ákefð ef vel á að fara. Ég þarf líka sjálfur að líta í eigin barm og skoða hvort ég hafi lagt þennan leik nógu vel upp. En svo þýðir ekkert að dvelja of lengi við þennan leik og fara bara að einbeita sér að því að kvitta fyrir hann þegar við mætum þeim næst,“ sagði hann. „Það er gaman að fá Arnar Frey aftur inn á völlinn þrátt fyrir að það sé auðvitað slæmt að missa Halldór Snæ af velli vegna meiðsla. Innkoma Sigurðar Breka, Matthíasar Björgvins og Fannars var svo líklega fyrir utan endurkomuna hjá Arnari Frey ljósasti punkturinn eftir þennan leik,“ sagði Óskar Hrafn.
Íslenski boltinn Besta deild karla KR Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira