Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 8. september 2026 07:02 Nú hefur nýr meirihluti Reykjavíkurborgar ákveðið að loka svæði fyrir hjólhýsabúa á Sævarhöfða og reka fólkið burt. En hvert á það að fara? „Engin miskunn hjá Magnúsi“ segir gamalt orðatiltæki. Mér varð hugsað til þess þegar ég las þessi nýjustu tíðindi af aðstæðum hjólhýsabúa. Flokkur fólksins hefur barist fyrir stöðu þessa hóps árum saman. Ég fór sjálf á Sævarhöfða sumarið 2024 til að kynna mér aðstæður og brá illa við. Aðstæðurnar voru vægast sagt ekki mannsæmandi og ég skrifaði þá að fólkinu væri í raun gert að búa á sorphaug. Þangað hafði því verið komið fyrir í tímabundnu neyðarúrræði árið á undan. Þessi tímabundna ráðstöfun varð hins vegar að árum. Sævarhöfði hefur aldrei verið boðleg lausn til framtíðar. Um það virðast raunar flestir sammála. Fólk á ekki að þurfa að búa til lengdar við hávaða, mengun og óöryggi á svæði sem var aldrei hugsað undir heimili þess. Í vor, á vakt síðasta meirihluta í borginni, var gerður samningur við Samtök hjólabúa um aðgang að landi í Gufunesi. Samningurinn var samþykktur í apríl og undirritaður í maí. Loksins virtist lausn vera í sjónmáli. Aðeins nokkrum vikum síðar ákvað nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar, með stuðningi Miðflokksins, að sópa þessari lausn út af borðinu. Íbúarnir fá tvo mánuði til að yfirgefa Sævarhöfða og engin önnur lóð er í boði. Þessu fólki er í raun vísað út á Guð og gaddinn. Það finnst mér ekki aðeins kaldranalegt heldur ómanneskjulegt. Fólkið hverfur ekki Það er auðvelt að loka svæði, segja upp samningi og strika út reit á korti. En það er ekki hægt að strika út fólk. Hjólhýsabúar eru ekki einsleitur hópur. Sum þeirra kjósa þetta búsetuform. Önnur hafa takmarkaða möguleika á húsnæðismarkaði. Þarna er meðal annars vinnandi fólk og lífeyrisþegar. Fyrir marga hefur hjólhýsið verið heimili þeirra árum saman, það búsetuform sem þeir ráða við eða hafa valið sér. Biðlistar eftir félagslegu húsnæði eru langir og almenni leigumarkaðurinn er mjög mörgum fjárhagslega ofviða. Tjaldsvæði eru ekki ætluð til fastrar búsetu. Eftir stendur því sú kalda staðreynd að fólkinu er gert að yfirgefa svæðið án þess að því sé boðinn annar staður til að búa á. Hér vaknar líka stærri spurning. Hversu fjölbreytt má Reykjavík vera? Við tölum gjarnan fallega um fjölbreytileika og samfélag fyrir alla. En fjölbreytileiki snýst ekki bara um það sem fellur snyrtilega inn í skipulag borgarinnar. Hann reynir fyrst á þegar samfélagið þarf að sýna sveigjanleika, til dæmis gagnvart ólíkum búsetuformum. Hvar ber hnífinn niður? Nýr meirihluti í Reykjavík hefur boðað mikla hagræðingu og hefur að eigin sögn aðeins kynnt fyrstu skrefin í þeim efnum. Flestir eru sammála um að hagræða verði í rekstri borgarinnar. Í tíð minni í borgarstjórn í tæplega sjö ár kallaði ég eftir því að tekið yrði til í borgarkerfinu, ýmist hagrætt eða skorið niður. Sem dæmi hafði bruðlið á þjónustu- og nýsköpunarsviði farið fyrir brjóstið á mér og fjölmörgum öðrum árum saman. En það skiptir öllu máli hvar niðurskurðarhnífurinn ber niður. Við höfum séð áform meirihlutans í Reykjavíkurborg um niðurskurð í frístundastarfi og félagsmiðstöðvum. Nú er samningi um nýjan stað fyrir hjólhýsabúa sagt upp og gamla svæðinu lokað án þess að annað sé í boði. Það veldur mér áhyggjum ef hér er að birtast mynstur þar sem fyrst er skorið niður hjá þeim sem hafa minnsta svigrúmið og veikustu röddina. Hjá efnaminna fólki og börnum. Hagræðing má ekki verða annað orð yfir það að þrengja að fólki sem nú þegar býr við þröngan kost. Ef meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks telur Gufunes ekki ganga verður hann að svara því hvert hjólhýsabúar eiga að fara. Hjólhýsabúarnir eru fólk, ekki skipulagsvandi. Það er ekki nóg að loka svæðinu, segja upp samningnum og láta þar við sitja. Þeir sem taka ákvörðun um að fólk verði að víkja með heimili sín verða líka að hafa svar við því hvert það á að fara og hvar það á að búa. Borg sem segist vera fyrir alla getur ekki strikað út fólkið sem þar býr. Höfundur er þingkona Flokks fólksins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Hjólhýsabyggð í Reykjavík Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun