„Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Smári Jökull Jónsson skrifar 8. september 2026 13:52 Magnús Þór Jónsson formaður KÍ var ánægður með orð Ingu Sæland ráðherra í dag. Vísir/Lýður Valberg Formaður Kennarasambands Íslands segir niðurstöður í kjarnagreinum PISA-könnunarinnar valda áhyggjum. Hann segist taka undir orð ráðherra sem tjáði sig um niðurstöðurnar á blaðamannafundi og treystir á að tekið verði undir ákall kennara um semfélagslegt samtal um skólamál.
Niðurstöður nýjustu PISA-kannanarinnar voru opinberaðar í morgun. Þar kemur fram að í kjarnagreinunum þremur, íslensku, náttúruvísindum og stærðfræði fer árangur íslenskra nemenda niður á við. Stærðfræði Lesskilningur Náttúruvísindi Ísland Meðaltal OECD Einnig má sjá í niðurstöðunum að aðeins rétt rúmur helmingur íslenskra nemenda nær grunnfærni í lesskilningu og þá eru niðurstöður barna með erlendan bakgrunn sérstakt áhyggjuefni en sá hópur kemur umtalsvert verr út en nemendur með íslenska foreldra. „Virðumst vera að ná ákveðnum sessi“ Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands var í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar og hann byrjaði á því að tala um það jákvæða úr niðurstöðunum. „Það gladdi okkur að við virðumst vera að ná ákveðnum sessi þegar snýr að því hvernig börnunum okkar líður í skólanum og hvaða traust þau bera til skólans,“ sagði Magnús en hann vísar þar til niðurstaðna um að nemendur fái almennt meiri aðstoð frá kennurum sínum í skólanum en að meðaltali hjá öðrum OECD-ríkjum. Þá sýna íslenskir meiri þrautseigju og eru með betri félagsleg tengsl en að meðaltali annars staðar. „En svo er það auðvitað þannig að við höfum verið að horfa á þessar niðurstöður í vísindunum, á læsinu og í stærðfræðinni fara niður á við og það veldur okkur áhyggjum.“ Orð ráðherra gefa væntingar um framhaldið Inga Sæland fór yfir niðurstöður PISA á blaðamannafundi í morgun. Á undanförnum mánuðum hefur í nokkur skipti slegið í brýnu á milli ráðherra og kennarafoyrstunnar en Magnús sagðist taka undir margt sem Inga sagði á fundinum. „Það var margt í máli ráðherra sem gefur okkur vonir og væntingar um að það sé raunverulegur áhugi stjórnmálanna til þess að stíga fast á bensíngjöfina og koma með aðgerðir til þess að bæta ástandið. Því miður hefur þetta verið viðkvæðið á undanförnum PISA-dögum að menn hafa nýtt til þess að búa til fyrirsagnir og raða hlutunum á einhvern annan stað.“ „En ef við ætlum að ná árangri þá held ég að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag. Við í Kennarasambandinu höfum verið að kalla eftir samfélagslegu samtali og við treystum á og mér fannst margt í hennar orðalagi í dag gefa væntingar um að við séum í alvörunni að horfa heildstætt á verkefnið.“ Hann segir skólasamfélagið aldrei hafa forðast að horfast í augu við það að staðan sé ekki nægilega góð. „Við þurfum samhent átak og hún kom inn á mjög marga þætti sem þarf að laga. Við verðum heldur betur tilbúin að vera með ráðherranum og öllu samfélaginu í því.“
Grunnskólar PISA-könnun Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Sjá meira