Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Aron Guðmundsson skrifar 8. september 2026 21:44 Einar Guðnason, þjálfari Víkings Reykjavíkur og Katrín Ásbjörnsdóttir, sérfræðingur Bestu markanna Vísir/Samsett Sérfræðingar Bestu markanna á Sýn Sport voru sammála gagnrýni Einars Guðnasonar, þjálfara Víkings Reykjavíkur á leikjaniðurröðun og leiktíma í lokaumferð Bestu deildar kvenna fyrir skiptingu en Katrín Ásbjörnsdóttir vildi ekki kvitta upp á mat hans á leikstaðnum í leik Stjörnunnar og Víkings í gær.
Leiknum lauk með 2-1 sigri Víkings en Einar lýsti yfir óánægju sinni í viðtali fyrir leik hvað varðaði leikstaðinn, en leikið var inn í Miðgarði þar sem verið var að skipta um gervigras á Samsung-vellinum, heimavelli Stjörnunnar. Afstaða hans breyttist ekkert eftir leik. „Það var ekkert verra fyrir annað hvort liðið, en það er fáránlegt að við séum að spila hérna. Boltinn fer upp í loftið hérna, áhorfendur sjá ekki völlinn, myndatakan er örugglega hörmuleg, ekki það að hann er frábær myndatökumaður. Það er bara lágur standard á þessari deild að leikir séu að fara fram hérna sem skipta máli í Íslandsmóti.“ Þá lét hann stór orð falla um leikjaniðurröðun lokaumferðar deildarinnar fyrir skiptingu en leikir í lokaumferðinni fóru fram á fjórum mismunandi leiktímum en jafnan er venjan sú að lokaumferðin sé öll spiluð á sama tíma. „Þetta er ekki boðlegt og þetta er önnur vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi. Þeir sem stjórna þessu þurfa að hysja upp um sig brækurnar og sýna að þeim sé annt um þessa deild, ekki láta svona kjaftæði gerast trekk í trekk,“ sagði Einar að lokum. Skiptar skoðanir um Miðgarð Ummæli Einars voru tekin fyrir í Bestu mörkunum á Sýn Sport í gær og var Mist Rúnarsdóttir, annar af sérfræðingum þáttarins sammála Einari. „Sérstaklega með leiktímann og að sama skapi með Miðgarð. Það er í boði að spila annars staðar. Við vitum það bara, hvort sem við erum að spila leikinn, mæta á völlinn eða eins og hann segir. Maður verður bara sjóveikur við að reyna horfa á fótboltaleik sem er tekinn upp þarna einni. Hundrað prósent sammála Einari.“ Klippa: Ekki sammála Einari með Miðgarð Katrín Ásbjörnsdóttir tók undir gagnrýni á leiktímann en ekki leikstaðinn. „Ég ætla bara að vera sammála um leiktímann og leikjaniðurröðunina af því að Miðgarður er frábær höll. Gott gras. Góð stúka. Búið að bæta við sætum. Það myndast geggjuð stemning þarna inni.“ Er þetta blái liturinn að tala í þér? „Kannski smá,“ svaraði Katrín sem spilaði um árabil með Stjörnunni. „Þetta eru bara einn tveir leikir þarna. Jú, ég skil alveg að hann sé pirraður yfir þessu en hann vinnur leikinn og áfram gakk. En það er ekkert að þessari höll. Hún er fín.“ Umræðuna úr Bestu mörkunum má sjá hér í spilaranum ofar í fréttinni.
Besta deild kvenna Stjarnan Víkingur Reykjavík Fótbolti Bestu mörkin Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira