Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Sindri Sverrisson skrifar 9. september 2026 11:03 Þegar Þróttarkonur fara út í upphitun á Laugardalsvelli á laugardaginn verður lokaumferð Lengjudeildar kvenna í fullum gangi og KR að berjast um sæti í Bestu deildinni. Samsett/Diego/KR Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari kvennaliðs Þróttar í fótbolta, gagnrýnir þá staðreynd að úrslitaleikur Mjólkurbikars kvenna sé á sama tíma og spennandi lokaumferð í Lengjudeildinni klárast. Þá kallar hann eftir fjölgun liða í tólf í Bestu deild kvenna, líkt og gert var hjá körlunum fyrir meira en 18 árum síðan.
Mikil spenna er fyrir lokaumferð Lengjudeildar kvenna þar sem KR og Haukar berjast um að fylgja Gróttu upp í Bestu deildina. Leikirnir hefjast klukkan 14 á laugardaginn og því ómögulegt fyrir viðstadda að ná að mæta á Laugardalsvöll fyrir bikarúrslitaleik Þróttar og Grindavíkur/Njarðvíkur sem hefst klukkan 16 sama dag. Bikarúrslitaleikur karla, á milli Breiðabliks og Aftureldingar, er á föstudagskvöld klukkan 19 á sama velli og konurnar spila á innan við sólarhring síðar. Ekki er spilað í neinni annarri keppni í íslenskum fótbolta á föstudaginn. „Því miður ekki það sama sagt um okkar leik“ „Það er auðvitað ekki frábært að leikurinn okkar skuli fara fram daginn eftir úrslitaleikinn karlamegin. En ég hef ekki miklar áhyggjur af því. Starfsmenn Laugardalsvallar eru með allt á hreinu og völlurinn verður í toppstandi á laugardaginn líka. Úrslitaleikurinn karlamegin er á föstudagskvöldi og verður klárlega spennandi. Enda flott tímasetning. Enginn annar leikur í gangi og það verður örugglega frábær mæting og mikil stemning,“ skrifar Jóhann á Facebook-síðu sína. „Það verður því miður ekki alveg það sama sagt um okkar leik á laugardeginum. Leikurinn hefst kl.16:00 og ég reyndar er alveg viss um að mætingin verður frábær frá báðum liðum og vonandi hlutlausu áhugafólki um fótbolta líka. En kl.14:00 þann sama dag hefst æsispennandi lokaumferð í Lengjudeild kvenna. Ha!? Ég þurfti að athuga þetta tvisvar til að vera viss. Leikmenn, þjálfarar, aðstandendur, sjálfboðaliðar og stuðningsfólk liðanna í Lengjudeild kvenna eru að spila lokaumferð ofan í úrslitaleik Mjólkurbikarsins!“ Jóhann Kristinn Gunnarsson er þjálfari Þróttar. Liðið spilar í efri hluta Bestu deildarinnar, nú þegar deildinni hefur verið skipt upp, en Jóhann vill fjölga liðunum í deildinni fyrir næstu leiktíð.vísir/Diego Jóhann veltir því einnig fyrir sér af hverju ekki sé búið að ákveða að fjölga liðum í Bestu deild kvenna úr tíu í tólf, líkt og gert var karlamegin fyrir tímabilið árið 2008. Besta deild kvenna hefur verið afar jöfn og spennandi í ár og nú er komið að lokakaflanum en þá skiptist deildin þannig upp að sex efstu liðin mætast innbyrðis en fjögur neðstu mætast innbyrðis. Af hverju er skiptingin 6/4 en ekki 5/5? „Einhver eru rökin fyrir því að skiptingin er ekki fimm og fimm en ég skil þau ekki. Að eitt lið sitji hjá í hverri umferð eftir tvískiptingu getur varla verið hættulegt. Það er augljóslega ekki stórhættulegt að mikilvægir leikir fari ekki fram á sama tíma ef við miðum við síðustu umferð fyrir skiptingu. Sú umferð fór fram á þrem mismunandi dögum. Karlamegin eru tólf lið og svo tvískipting í sex efri og sex neðri. Virkar það ekki bara ágætlega? Allt þetta tvískiptingardæmi er niðurstaðan af því að við viljum fjölga leikjum. Sem er bara flott,“ skrifar Jóhann. „Fjölgum í deildinni strax!“ Hann spyr svo af hverju ekki sé fjölgað í tólf liða Bestu deild, og hvort einhverjir séu í raun og veru á móti því. Hvort leggja þurfi fram tillögu á ársþing KSÍ en sú leið er jafnan farin við breytingar á fyrirkomulagi deildanna. „Er eitthvað eðlilegt við að fjögur af tíu liðum í Bestu deildinni spili tveim leikjum færra á tímabili í deild en hin sex? Var ekki einhver nefnd sett á laggirnar til að koma með tillögur að breyttu fyrirkomulagi varðandi þessa skiptingu í deildunum? Er ekki hægt að kippa þessu í liðinn bara núna? Fjölgum liðum, fjölgum leikjum og látum jafnt yfir öll lið ganga. Svo má athuga og endurskoða þetta fyrirkomulag karla-og kvennamegin eftir nokkur ár eins og eðlilegt er. En höfum þetta a.m.k. á einhverju skynsamlegu plani. Það er nefnilega hellings munur á því að spila tveim leikjum færra og í leiðinni að tímabilið sé þrem vikum styttra en hjá efri hlutanum. Fjölgum í deildinni strax!“ Vangaveltur Jóhanns setja lokaumferð Lengjudeildarinnar í enn meira spennandi samhengi þar sem mætti ímynda sér að liðið sem endar þar í 3. sæti fengi þá sæti í Bestu deildinni, yrði liðum fjölgað í tólf. Selfoss og HK eru í 4. og 5. sæti en eiga möguleika á að komast í 3. sæti. Pistil Jóhanns má sjá í heild sinni á Facebook.
Besta deild kvenna Mjólkurbikar kvenna Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira