Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Sindri Sverrisson skrifar 9. september 2026 13:31 Alisson og Virgil van Dijk reyndu að koma vitinu fyrir Sam Barrott en án árangurs. Vítaspyrnudómurinn fékk að standa. Getty/Dan Mullan Nottingham Forest hefði ekki átt að fá vítaspyrnuna sem dæmd var á Alisson, markvörð Liverpool, í leik liðanna í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.
Þetta er niðurstaða nefndar ensku úrvalsdeildarinnar sem skoðar lykilatvik í leikjum (e. KMI Panel). Nefndin komst hins vegar einnig að þeirri niðurstöðu að ekki hefði átt að senda dómarann að varsjánni til þess að meta atvikið betur og endurskoða ákvörðun sína. Atvikið má sjá hér að neðan, þegar 2 mínútur eru liðnar af myndbandinu. Vítaspyrnan var dæmd á Alisson fyrir meint brot á Neco Williams og úr spyrnunni skoraði Morgan Gibbs-White og kom Forest í 2-1, áður en Victor Munoz tryggði Liverpool stig með jöfnunarmarki á 82. mínútu. Samkvæmt frétt BBC voru fulltrúar fyrrgreindrar nefndar ósammála um vítadóminn og töldu tveir rétt að dæma víti en þrír voru ósammála dómnum. Allir voru hins vegar sammála um að það hefði verið rétt ákvörðun hjá Michael Oliver, myndbandsdómara leiksins, að senda ekki dómarann Sam Barrott að varsjánni til að skoða atvikið betur. Það á aðeins að gera þegar um augljósari mistök er að ræða. Arsenal átti að fá víti og Maatsen slapp við rautt Englandsmeistarar Arsenal voru aftur á móti sviknir um vítaspyrnu í lokin á 1-0 sigri sínum gegn Aston Villa. Nefndin var á einu máli um að réttast hefði verið að dæma víti á Ian Maatsen þegar hann renndi sér í Bruno Guimaraes í uppbótartíma, og að Maatsen hefði átt að fá sitt annað gula spjald og þar með rautt. Nefndin taldi einnig ljóst að myndbandsdómarinn James Bell hefði gert mistök með því að láta ekki dómarann Jarred Gillett skoða atvikið á myndbandi. Atvikið má sjá undir lok myndbandsins hér að neðan. Klippa: Aston Villa - Arsenal 0-1
Enski boltinn Liverpool FC Nottingham Forest Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjá meira