„Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Stefán Árni Pálsson skrifar 9. september 2026 12:45 Gunnar Heiðar Þorvaldsson er þjálfari HK. Hann ætlar með liðið á Laugardalsvöllinn. Umspilið um laust sæti í Bestu-deild karla hefst í dag og í kvöld. Njarðvík tekur á móti Þrótturum klukkan fimm í dag. Njarðvík hafnaði í fimmta sæti deildarinnar en Þróttur í 2. sæti.
Það lið sem vinnur einvígið samanlagt fer beint í hreinan úrslitaleik á Laugardalsvelli um laust sæti í Bestu-deildinni. HK tekur síðan einnig á móti Fylki klukkan 19:15 í Kórnum í kvöld. Fylkir endaði deildina í 3. sæti en HK í því fjórða. HK-ingar hafa verið verulega sterkir í Kórnum að undanförnu og tapast ekki margir leikir þar. „Við erum búnir að vera sterkir á heimavelli. Við gerðum eitt jafntefli og unnum alla hina í deildinni og vorum náttúrulega að vinna Fylki fyrir fjórum dögum síðan á þessum velli og þetta er nú smá svona skrítið að vera að fara aftur í að spila á móti þeim og aftur í Kórnum,“ segir Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari HK í hádegisfréttum Bylgjunnar. Óstöðug byrjun Miðað við úrslit HK í sumar þá telur Gunnar mikilvægt að vinna leikinn í kvöld. „Miðað við hvernig þetta er búið að vera hjá okkur í sumar, svona rokkandi, vinna heima og tapa úti, þá yrði það betra. En við erum búnir að læra rosalega margt á þessu tímabili. Við náttúrulega byrjuðum frekar óstöðugir en okkur finnst við vera komnir á mun betri stað núna heldur en í byrjun tímabils þannig að ég á nú ekki von á öðru en bara virkilega góðu HK-liði bæði núna í leiknum í kvöld, í Kórnum og svo í Árbænum á sunnudaginn.“ HK hefur unnið báða leikina við Fylki á tímabilinu. Er Gunnar Heiðar með ákveðið tak á Heimi Guðjónssyni þjálfara Fylkis? „Ég held það sé nú enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns. Við erum búnir að vinna báða leikina heima og heiman svo sem og vitum alveg hvernig Fylkir er að spila og þeir náttúrulega vita líka alveg hvernig við erum að spila. Þetta er bara oft spurning í svona leikjum, þessi litlu atriði að þau detti með þér eða á móti þér, stöngin inn eða stöngin út. Við verðum að vera mjög einbeittir allan tímann. Þetta er auðvitað tveggja leikja viðureign og við þurfum að halda okkur einbeittum í þessum báðum leikjum til að komast á Laugardalsvöllinn.“
Lengjudeild karla HK Fylkir Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira