„Við erum að laga Ísland“ Agnar Már Másson skrifar 9. september 2026 20:01 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti í kvöld stefnuræðu fyrir komandi þingvetur. Vísir/Viktor Freyr Í stefnuræðu sinni hampaði forsætisráðherra því að verðhækkanir á húsnæðismarkaði hefðu staðnað og sagði ríkisstjórnina ætla að setja málefni barna í forgang í vetur. Ríkisstjórnin sé að „laga Ísland.“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti í kvöld stefnuræðu sína fyrir 158. löggjafarþing Alþingis. Þingið var formlega sett í gær og samdægurs kynnti ríkisstjórnin þingmálaskrá. Á mánudag kynnti ríkisstjórnin fjárlög. Í ræðu sinni sagðist Kristrún telja ljóst að þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst – þar sem þjóðin hafnaði að taka upp á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið með tæplega 53 prósenta meirihluta – hefði verið sigur fyrir lýðræðið í landinu, hvernig sem á það væri litið. „Í fyrsta lagi vegna þess að kosningaþátttaka var söguleg, spurningin einföld og svarið skýrt,“ sagði hún og ítrekaði að ríkisstjórnin myndi ekki hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Þeirri ákvörðun hafi þegar verið komið skriflega á framfæri við ráðherraráð og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, en fyrr í dag var greint frá bréfi utanríkisráðherra þess efnis til ESB. Með atkvæðagreiðslunni hefði verið mörkuð skýrari stefna fyrir Ísland til næstu ára varðandi samskipti við Evrópu og umheiminn „sem mun meðal annars byggja á því að við pössum upp á samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, af fullri ábyrgð og alvöru, þó að Ísland taki ekki skrefið til fullrar aðildar að Evrópusambandinu,“ sagði hún. „En með því höfum við ekki sagt nei við Evrópu eða nei við því að halda áfram nánu og góðu samstarfi við Evrópusambandið, öðru nær. Við erum ekki að hætta eða hörfa frá neinu sem verið hefur enda var hvorki að því spurt á kjörseðlinum né að því stefnt hjá þessari ríkisstjórn. Og það er mikilvægt að þetta komi skýrt fram.“ Hafi stöðvað stjórnlausar verðhækkanir á húsnæðismarkaði Því næst vék Kristrún sér að verkum ríkisstjórnarinnar frá því að hún tók við í lok árs 2024. Í því samhengi nefndi hún að árangur hefði náðst með þjóðarátaki í umönnun eldra fólks, tengingu lífeyris við launavísitölu, lækkun raforkureiknings í dreifbýli og með samþykkt Samgönguáætlunar. Hún sagði að ríkisstjórninni hefði tekist að endurheimta stjórn í útlendingamálum „með því að ganga til verka af festu og vandvirkni við að koma á kerfi sem er réttlátt en raunsætt og sem gætir samræmis við reglur í nágrannaríkjum okkar.“ Hún bætti við að í vetur færi fram heildarendurskoðun á dvalarleyfaveitingum og reglum um brottvísanir. Síðan vék hún að húsnæðismálum. „Við höfum stöðvað stjórnlausar verðhækkanir á húsnæðismarkaði og þannig stöndum við með fjölskyldum og ungu fólki sem vill gera drauminn um eigið húsnæði að veruleika á Íslandi,“ sagði hún en verðbólga mælist nú 5,6 prósent og stýrivextir standa í 8 prósentum. Hlutfall fyrstu kaupenda væri það hæsta frá því fyrir efnahagshrunið árið 2008, vanskil heimila hefðu aldrei verið minni frá upphafi mælinga og samkvæmt greiningu Þjóðhagsráðs hefði kaupmáttur aukist hjá öllum tekjuhópum frá árinu 2024. „Ekki misskilja mig, þessi markaður er ennþá bilaður,“ viðurkenndi hún þó „og við ætlum að gera ennþá betur.“ Málefni barna í forgangi Þótt hún hampaði árangri í málefnum barna – meðal annars hvað varðar börn og ungmenni sem bíða eftir plássi á meðferðarheimili – viðurkenndi hún að gera þyrfti betur. Sá málaflokkur verði í forgangi í vetur. Þá sagði hún ríkisstjórnina ætla að ráðast í heildarendurskoðun á barnaverndarlögum, leggja áherslu á að stytta biðtíma barna eftir þjónustu og byrja í haust að skima fyrir ofbeldi í grunnskólum um land allt. „Þá leggjum við fram fyrstu ungmennastefnu Íslands, þingsályktun um aðgerðir gegn fátækt barna og síðast en ekki síst aðgerðaáætlun menntastefnu til ársins 2030,“ bætti hún við. Þá kvaðst Kristrún sjálf myndu mæla fyrir lagafrumvarpi um að þeir Íslendingar sem hafi sætt óforsvaranlegri meðferð sem börn á ábyrgð hins opinbera, beint eða óbeint, muni eiga þess kost að sækja um sanngirnisbætur. Erfiðar ákvarðanir í ríkisfjármálum Þá segir hún að ríkisstjórnin hafi þurft að taka erfiðar ákvarðanir í ríkisfjármálum, þar á meðal hagræðingu með fækkun verkefna, ráðuneyta og ríkisstofnana. Í fyrsta skipti í tæpan áratug hafi verið lögð fram hallalaus fjárlög og markmiðið sé að hætta að reka ríkið á yfirdrætti „svo að ríkið hætti að kynda undir þenslu og verðbólgu, eins og verið hefur enda er verðbólgan vissulega enn of mikil og stendur í 5,6 prósentum – yfir meðalverðbólgu frá aldamótum sem hefur verið um 5 prósent,“ sagði Kristrún. „Við sögðumst ætla að laga Ísland,“ sagði ráðherrann og hélt áfram: „Við erum að laga Ísland, með því að laga fyrst grunninn. Það tekur tíma en það er að takast. Og á þeim grunni getum við síðan loksins í sameiningu litið til lengri framtíðar fyrir landið okkar.“ Þrátt fyrir sviptivinda í hagkerfi heimsins, sem berist einnig til Íslands, sé þjóðin mikils megnug. „Ekki síst þegar við gætum þess, hvert og eitt, að festast ekki í pólitísku þrasi um fortíðina heldur tökum höndum saman um þá framtíð sem við berum ábyrgð á og sköpum hana hér, á Íslandi. Ein þjóð í einu landi.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira