Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. september 2026 08:30 Teitur Guðmundsson er forstjóri Heilsuverndar. Vísir Staða hjúkrunarheimila á landinu hefur batnað til muna að mati forstjóra Heilsuverndar en þó er enn langt í land. Eitt vandamálanna sé skortur á mannskap en litið er til tæknilausna á við gervigreind til að leysa þann vanda að hluta. „
Það er afar ánægjulegt að sjá að það sé árangur af því starfi sem er í gangi. Það verður nú samt að segja að það er auðvitað talsvert sem búið er að vera í farvegi í ákveðinn tíma. Þannig að það sem er að raungerast núna að hluta er eitthvað sem er búið að gera eða semja um áður,“ segir Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar, í Bítinu á Bylgjunni. Allir sem koma að rekstri hjúkrunarheimila hafi séð að það sé búið að vera ákveðið ófremdarástand þar sem fjöldi aldraðra komist ekki í varanlega vistun á hjúkrunarheimili. Nú í fyrsta skipti á þessari öld sé staðan loks orðin betri, líkt og á Landspítalanum. „Heilsuvernd opnaði í Urðarhvarfi biðhjúkrunarrými í apríl og það er búið að enduropna Vífilsstaði sem við vorum með áður reyndar í rekstri og lokuðum á meðan til þess að geta farið í framkvæmdir,“ segir Teitur. Á þessum tíma sé búið að taka við 180 einstaklingum í biðhjúkrunarrýmið í Urðarhvarfi, sem sé mjög mikið. Þeir komi margir hverjir af Landspítalanum með gilt færni- og heilsumat sem þarf til þess að vera talinn hæfur til að fara í varanlega búsetu á hjúkrunarheimili. Búist er við að 250 fái pláss á næsta ári og árinu þar á eftir. Það sé samt sem áður ekki nóg til þess að telja stöðuna góða, þótt hún sé betri en áður. Hann hrósar ríkisstjórninni fyrir störf sín. „Við erum á leiðinni á betri stað en við erum ekki komin þangað. Við eigum ennþá töluvert í land og það er langt í að við séum komin þangað.“ Líta til gervigreindarlausna Helstu vandamálin eru annars vegar mönnunarvandi þar sem þörf er á töluverðum mannskap og hins vegar húsnæðið. Húsnæðisuppbyggingin gangi almennt vel miðað við spárnar. „Ég held að heilt yfir megi segja að það sé alls staðar bið í kerfunum á einhverjum stað, sama hvaða þjónustu þú ert að leita að. Við þurfum að breyta því,“ segir Teitur. Vélmenni hafa þá verið fengin til aðstoðar til að sporna gegn mönnunarþörfinni. Til dæmis sér eitt vélmenni um að hreinsa af borðunum á hjúkrunarheimili Hrafnistu við Sléttuveg. „Við erum að horfa á það að á heimilunum getur þú til dæmis metið fallhættu og unnið með vöktun eða í raun utanumhald með myndavélum og gervigreindarnálgun. Þetta er tækniþróun sem er á mjög mikilli ferð,“ segir hann. „Ég held að það sé engin spurning ef við horfum á möguleikana í því að samnýta tækni með mannaflanum.“
Hjúkrunarheimili Gervigreind Eldri borgarar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Heilbrigðismál Bítið Bylgjan Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira