Á ekki að snúast um karla gegn konum Stefán Árni Pálsson skrifar 10. september 2026 12:47 Jóhann ætlar að ná í fyrsta stóra titil Þróttara í sögu félagsins. vísir/anton „Nú er bara spenningur, það er ekkert annað hægt að segja. Það er fiðringur í maganum en þetta verður stór og skemmtilegur dagur og tilfinningin er góð,“ segir Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari kvennaliðs Þróttar, fyrir bikarúrslitaleik liðsins gegn Grindavík/Njarðvík klukkan fjögur á laugardaginn.
Jóhann gagnrýndi í vikunni þá staðreynd að úrslitaleikur Mjólkurbikars kvenna sé á sama tíma og spennandi lokaumferð í Lengjudeildinni klárast. „Ekki það að ég ætli að láta þetta hafa einhver úrslitaáhrif á hvernig ég og við undirbúum leikinn en ég hef svolitlar áhyggjur af þessu. Að við séum að fara svolítið gegn sjálfum okkur með því að stilla því upp þannig að Lengjudeildin í kvennafótboltanum sé að fara ofan í þennan viðburð. Ég held að þetta séu ansi margir aðilar sem mæta ekki á völlinn sem að hefðu annars gert.“ Úrslitaleikurinn karlamegin stendur einn og sér á föstudagskvöldinu. „Ég veit ekki hvort þetta eigi eitthvað að snúast alveg um karla versus konur. Ég held bara það hefði verið hægt að hafa báða viðburði á þannig tíma að þeir myndu ekki rekast á eitthvað annað sem er í gangi því að mér finnst þetta stór viðburður og mér finnst óþarfi að taka hann niður.“ Karlarnir spila kvöldið áður sinn leik en hefur Jóhann áhyggjur af ástandi vallarins daginn eftir? „Ég hef ekki stærstu áhyggjurnar af því. Við fengum að skoða völlinn í gær og hann lítur mjög vel út og fólkið sem vinnur hérna er alveg rúmlega starfi sínu vaxið. Ég hef engar áhyggjur af því. Ég hefði áhyggjur ef veðurspáin væri þannig að þetta yrði kannski grenjandi rigning allan tímann eða eitthvað svoleiðis en ég held að bikarhelgi sé ekkert galin hugmynd.“ Stórviðburður sem á að njóta Hann segist ekki breyta miklu í undirbúningnum fyrir leikinn sjálfan. „Við ætlum samt að reyna að fagna því að þetta sé stórviðburður og reyna að taka þannig á móti þessu að þetta sé ánægjulegt og eitthvað sem við eigum að njóta og upplifa saman í staðinn fyrir að þetta verði eitthvað sem er kvíðanlegt þannig að það er bara spenningur.“ Þróttur getur með sigri unnið sinn fyrsta stóra titil í sögu félagsins. „Allir eru í þessu til þess að vinna, hvort sem það er næsti leikur eða boðhlaup á æfingu og ég tala nú ekki um stóra titla. Þetta er stór titill og það er rosalegur hugur í okkur og öllu okkar fólki að ná í þennan bikar á laugardag.“ Hann segir að lykillinn að sigri sé að nálgast leikinn eins og aðra í sumar. „Við þurfum bara að vera sjálfum okkur líkar í leiknum. Leikmenn verða að nálgast leikinn eins og við höfum verið að gera undanfarið og reyna að byggja svo einhverjum örfáum prósentum ofan á það. Þá hef ég ekki áhyggjur af útkomunni. Við ætlum að gera það svo að þetta verði bara spennandi.“ Klippa: Á ekki að snúast um karla gegn konum
Mjólkurbikar kvenna Þróttur Reykjavík UMF Grindavík UMF Njarðvík Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira