Samtal getur bjargað lífi Alma D. Möller skrifar 10. september 2026 11:30 Alþjóðlegur dagur sjálfsvígsforvarna er haldinn ár hvert á þessum degi, 10. september. Forvarnastarf byggir á þeirri hugmynd að við getum gripið til aðgerða til að fyrirbyggja og draga úr hvers kyns neikvæðum áhrifum og afleiðingum. Forvarnastarf horfir þannig til framtíðar í þeirri von að við getum hagnýtt þekkingu okkar í dag, komandi kynslóðum til heilla. Sjálfsvíg eru einn stærsti og flóknasti lýðheilsuvandi samtímans. Á heimsvísu deyja árlega vel yfir 720 þúsund manns í sjálfsvígi og sjálfsvíg eru þriðja algengasta dánarorsök fólks á aldrinum 15 til 29 ára. Hér á landi hafa að meðaltali 43 látist í sjálfsvígi ár hvert eða um 11 á 100 þúsund íbúa og hefur sú tala haldist að kalla óbreytt í áratugi. Þar með er ekki öll sagan sögð, því harmurinn sem fylgir hverju sjálfsvígi nær langt út fyrir innsta hring þess sem féll fyrir eigin hendi. Áætlað er að gáruáhrif hvers sjálfsvígs snerti í kringum 130 manns. Sjálfsvíg og afleiðingar þeirra varða samfélagið í heild sinni og það er einmitt á grunni þeirra gilda sem við byggjum samfélag okkar á sem við getum mætt þessari áskorun. Samkenndin er öflugt verkfæri í sjálfsvígsforvörnum því samtal getur bjargað lífi. Hugmyndafræði Guls september er einmitt samkenndin og að láta sig náungann varða. Í septembermánuði ár hvert minnum við hvert annað á mikilvægi þess að rjúfa þögnina sem oft ríkir milli okkar um líðan og geðheilsu. Þessi mikli kraftur sem fólginn er í samúðinni endurspeglast í slagorði Guls september: Er allt í gulu? Í september erum við hvött til að taka samtalið, til að vera vakandi fyrir vanlíðan annarra og rétta þeim hjálparhönd sem þarfnast stuðnings, ráðgjafar og lausna. Á fáum árum hefur Gulur september fest sig í sessi sem árleg vitundarvakning og hvatning til okkar allra. Sjálfsvígsforvarnir eru nefnilega ekki aðeins verkefni heilbrigðisþjónustunnar, heldur alls samfélagsins. Dagskrá Guls september er vitnisburður um þetta þar sem íþróttahreyfingin, æskulýðsfélög, skólar, kórar, vinnustaðir, trúfélög og félagasamtök taka þátt. Á opnunarhátíð Guls september í Háskólanum í Reykjavík 1. september var nýtt símanúmer hjálparsíma Píeta-samtakanna: 1799. Þetta nýja símanúmer er mikilvægt lágþröskulda úrræði sem veitir ráðgjöf allan sólarhringinn. Frá árinu 2023 hefur heilbrigðisráðuneytið tryggt fast árlegt fjármagn til sjálfsvígsforvarna og þar með stöðu verkefnastjóra hjá embætti landlæknis. Síðustu tvö ár hefur ráðuneytið jafnframt veitt viðbótarfjármagn til einstakra aðgerða. Ráðuneytið gaf út aðgerðaáætlun um sjálfsvígsforvarnir og embætti landlæknis ber ábyrgð á framkvæmd hennar. Áætlunin telur 26 aðgerðir þar sem fjórum er nú lokið og 13 eru í vinnslu. Margar þeirra eru umfangsmiklar og kalla á samstarf margra ráðuneyta, stofnana og samtaka. Sjálfsvígsforvarnir eru ekki verkefni sem afmarkast við einn mánuð á ári, heldur eru þær og verða viðvarandi verkefni í samfélagi okkar. Það er óskandi að boðskapur Guls september leiði til samtals og aukinnar samkenndar árið um kring. Nýtum tækifærið nú í september til að æfa okkur í að spyrja „Er allt í gulu?“ Gefum okkur tíma til að hlusta og bregðumst við þegar tilefni er til, því úrræðin eru til staðar. Við erum öll sjálfsvígsforvarnir Kynnum okkur staðreyndir um efnið, t.d. á gulurseptember.is og á sjalfsvig.is. Látum okkur líðan hvert annars varða. Þorum að ræða málin en gerum það af yfirvegun. Við getum öll lagt af mörkum og borið út boðskapinn um að það er hjálp að fá. Þeim sem glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Píeta-símann 1799, Upplýsingasíma heilsugæslunnar 1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717 og netspjallið 1717.is. Fleiri úrræði eru í boði eins og Bergið, Hugarafl o.fl. Þeim sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar s. 1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s. 552-2218. Höfundur er heilbrigðisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alma D. Möller Geðheilbrigði Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar