Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Sindri Sverrisson skrifar 10. september 2026 13:32 Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Víkingi voru afar óheppnir með drátt í Evrópudeildinni í sumar. vísir/Anton Um klukkan 21 annað kvöld ætti að koma í ljós hvort það verður Afturelding eða Breiðablik sem verður fulltrúi Íslands í 1. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar næsta sumar. Leið þess liðs inn í Evrópudeildina er orðin enn torfærari en áður en leið Íslandsmeistaranna virðist mun greiðfærari.
Miðað við stöðu Íslands á styrkleikalista UEFA verða engar breytingar á því hvernig íslensku liðin koma inn í undankeppnir Meistaradeildar, Evrópudeildar og Sambandsdeildar næsta sumar. Verðandi Íslandsmeistarar, líklega Víkingar, fara í 1. umferð af fjórum í undankeppni Meistaradeildar. Með falli úr undankeppni Meistaradeildarinnar gætu þeir færst í undankeppni Evrópudeildar og þaðan í undankeppni Sambandsdeildar.Falli Íslandsmeistararnir úr leik í umspili (fjórðu og síðustu umferð undankeppni) Meistaradeildar fara þeir beint inn í aðalkeppni Evrópudeildarinnar, og sömuleiðis beint í aðalkeppni Sambandsdeildar ef þeir falla út í umspili Evrópudeildar. Verðandi bikarmeistarar, Afturelding eða Breiðablik, byrja í 1. umferð af fjórum í undankeppni Evrópudeildar. Falli þeir úr leik í 1., 2. eða 3. umferð fara þeir í næstu umferð í undankeppni Sambandsdeildar. Falli þeir úr leik í umspili fara þeir beint í aðalkeppni Sambandsdeildar. Liðið sem endar í 2. sæti Bestu deildarinnar, líklega Fram eða KR, byrjar í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar. Liðið sem endar í 3. sæti Bestu deildarinnar, líklega Fram eða KR, byrjar í 1. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar. UEFA hefur gert smávægilegar, en áhrifamiklar, breytingar á umspilinu í undankeppni Evrópudeildarinnar, fyrir næstu leiktíð. Liðum hefur hingað til verið skipt upp í „meistaraleið“ og „aðalleið“ fram að umspili en nú helst skiptingin einnig í umspilinu. Liðið sem vinnur Mjólkurbikarinn á morgun fer að öllum líkindum í 1. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar, líkt og Vestri í sumar. Bikarmeistararnir fara í „aðalleiðina“ í undankeppninni sem þykir umtalsvert erfiðari en „meistaraleiðin“.vísir/Anton Borac í staðinn fyrir Ajax eða Rangers? Þetta þýðir að Íslandsmeistararnir ættu að fá viðráðanlegri mótherja í formi landsmeistara frá minni fótboltaþjóðum, komist þeir í umspil Evrópudeildarinnar. Víkingar voru bara einni umferð frá umspili Evrópudeildarinnar í sumar, eftir að hafa verið afar óheppnir og dregist gegn svissnesku meisturunum í Thun í stað til að mynda KÍ frá Færeyjum. Í umspilinu hefðu hins vegar beðið stórlið á borð við Benfica og Anderlecht en miðað við nýju reglurnar hefðu mótherjarnir getað verið mun lægra skrifaðir. Hér að neðan má sjá hugmynd að því hvernig styrkleikaflokkar fyrir umspil Evrópudeildar gætu litið út næsta sumar, byggt á reiknilíkani Football Meets Data, eftir nýju reglurnar. Víkingar gætu þannig dregist gegn til að mynda Shamrock Rovers frá Írlandi eða Borac Banja Luka frá Bosníu, en sloppið við Ajax, Rangers, Panathinaikos og fleiri stórlið. Spá um styrkleikaflokka fyrir drátt í umspil Evrópudeildar næsta sumar. Eins og sjá má er liðunum skipt í „aðalleið“ og „meistaraleið“ en áður var ekki slík skipting í umspilinu.@fmeetsdata Að sama skapi gera breytingarnar leið íslensku bikarmeistaranna inn í Evrópudeildina enn erfiðari. Þeir þurfa frá byrjun að fara í gegnum „aðalleiðina“ og lenda fljótt með liðum úr toppbaráttu mikilla fótboltaþjóða eins og Hollands, Belgíu, Tyrklands, og Grikklands. Ef svo ólíklega færi að þeir kæmust í umspilið þá væri nú enn líklegra en áður að þeir fengju níðþungt stórlið á móti sér þar.
Víkingur Reykjavík Besta deild karla Fram KR Breiðablik Afturelding Evrópudeild UEFA Sambandsdeild Evrópu Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira