Handbolti

Reynir að skáka og máta „einn efni­legasta þjálfara í heimi“

Aron Guðmundsson skrifar
Aron Pálmarsson, þjálfari FH og Hrannar Guðmundsson, þjálfari Aftureldingar mætast í stórleik kvöldsins í Olís deild karla í handbolta
Aron Pálmarsson, þjálfari FH og Hrannar Guðmundsson, þjálfari Aftureldingar mætast í stórleik kvöldsins í Olís deild karla í handbolta Vísir/Samsett

Afturelding tekur á móti FH í stórleik kvöldsins í Olís deild karla í handbolta og reynir um leið að slá hinn fullkomna tón fyrir sögulegan dag fyrir félagið á morgun. 

Afturelding þurfti að bíða óvenju lengi eftir sigri sínum gegn nýliðum Víkings Reykjavíkur í fyrstu umferð deildarinnar. Ástæðan sú að ekki var hægt að klára leikinn fyrr en um tveimur dögum eftir að hann var flautaður á sökum rafmagnsleysis í Víkinni. 

Þið hljótið að vonast til þess að geta byrjað og klárað leikinn gegn FH í kvöld?

„Það væri skemmti­legra,“ segir Hrannar Guðmundsson, annar af þjálfurum Aftureldingar í samtali við Vísi.  „Þetta var eins og al­vöru krikket leikur í lengd þessi leikur á móti Víkingum. Ég ætla að vona að við náum að spila þennan leik og taka tvisvar sinnum þrjátíu mínútur í kvöld. Við erum við öllu búnir.“

Þetta hlýtur að hafa verið áskorun að þurfa spila leikinn í tveimur mis­munandi hollum með góðan tíma á milli?

„Al­gjör­lega. Það var sér­stakt. Svona er bara lífið, svona getur gerst. Nú er maður búinn að prufa þetta. Þetta var flottur leikur hjá okkur á móti Víkingum, sér í lagi fyrri hálf­leikurinn. Við hefðum geta unnið leikinn stærra. Það var skrítið að koma inn í seinni hálf­leikinn tveimur dögum síðar, auðveldara fyrir þá að móti­vera sig jafn­vel í það. Mér finnst gróður bragur á liðinu og lýst ótrú­lega vel á þetta. Við erum með skemmti­legan hóp í höndunum, metnaðar­fullan hóp sem er til­búinn að leggja mikið á sig. Við höfum æft vel og komum vel gíraðir inn í leik kvöldsins.“

Framundan stórleikur gegn FH-ingum Arons Pálmarssonar í kvöld á heimavelli en FH hafði betur gegn Stjörnunni í fyrstu umferð deildarinnar. 

„Mér lýst hrika­lega vel á þetta. FH er með frábært lið. Hafa sýnt það á undan­förnum árum og núna á undir­búningstíma­bilinu að þetta er hörku lið. Þeir hafa farið í gegnum leik­manna- og þjálfara­breytingar, þetta er hrika­lega verðugt verk­efni og mér lýst vel á þetta. Það verður gaman í Varm­á í kvöld.“

Frá leik FH og Stjörnunnar í fyrstu umferð Olís deildarinnarVísir/Pawel

Þjófstart í Mosfellsbæ

Enda risa leikur fram­undan fyrir Mos­fells­bæ annað kvöld þegar að Aftur­elding, sem tryggði sér ný­lega sæti í Bestu deildinni, mætir Breiða­bliki í úr­slita­leik Mjólkur­bikarsins á Laugar­dals­velli. Evrópusæti undir og mögu­leiki á fyrsta bikar­meistara­titlinum.

„Stór helgi hjá okkur Mos­fellingum. Fót­boltinn í bikarúr­slitum á morgun og frábært fyrir Mos­fellinga og Aftur­eldingar­menn að þjóf­starta þessari veislu með toppslag í hand­boltanum í kvöld.

Hvort sem það eru bikarúr­slit í fót­bolta eða hand­bolta, úr­slita­leikir yfir höfuð, þá hafa Mos­fellingar sannað það og sýnt að þeir flykkjast á völlinn og eru reiðu­búnir í að standa á bak við sín lið sama hvort það sé í blíðu eða stríðu. Ég hef engar áhyggjur. Við fyllum okkar hluta stúkunnar á morgun, setjum tóninn í kvöld og klárum þetta á morgun.“

Einn efnilegasti þjálfari í heimi

Hvernig lýst þér á þá áskorun að mæta Aroni Pálmars­syni í kvöld á hliðar­línunni?

„Það er frábært. Aron er örugg­lega einn efni­legasti þjálfarinn í heiminum í dag og einn besti leik­maðurinn á heims­vísu í sögu hand­boltans. Heiður að mæta honum og reyna skáka og máta hann.“

Aron Pálmarsson er þjálfari FHvísir / anton

„Við þurfum að spila hörku vörn til þess. FH er með hrika­lega flott sóknar­lið. Með frábær­lega mannað lið, með mikið af ein­stak­lings­gæðum og eru vel drillaðir og góðir. Þeir keyra mjög mikið upp völlinn, spila smá spænska vörn með bein­skeytta bak­verði. Þetta er lið sem er með allan pakkann. Við þurfum að spila vel á öllum vígstöðvum til að vinna þennan leik.“

Leikur Aftureldingar og FH í 2. umferð Olís deildar karla í handbolta spila í Myntkaup höllinni í Mosfellsbæ hefst klukkan korter yfir átta í kvöld og verður lýst í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×