„Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Sindri Sverrisson skrifar 13. september 2026 09:02 Sindri Snær Magnússon er fyrirliði Keflavíkur. Liðið hefur komið öllum á óvart í sumar. vísir/Anton „Ég held að hver einasti maður sem fylgdist með hafi ákveðið að við færum beint niður aftur. Það var klárlega ekki planið og við héldum okkur sannfærandi í deildinni,“ segir Sindri Snær Magnússon, fyrirliði Keflavíkur, sem þvert á allar spár mun í versta falli enda í 6. sæti Bestu deildarinnar í ár.
Keflvíkingar sneru aftur í Bestu deildina í ár en var alls staðar spáð falli beint aftur í Lengjudeildina. Þeir hafa blásið kröftuglega á þessar hrakspár, spila í efri hluta deildarinnar eftir að henni hefur nú verið skipt í tvennt, og enda fyrir ofan lið á borð við Val og Stjörnuna. „Við vorum góðir í sumar, eins og ég held að allir sem fylgdust með boltanum hafi tekið eftir. Við höfum staðið okkur vel í nánast allt sumar og átt góðar frammistöður í öllum leikjum nema tveimur Ég held að þessar spár hafi verið gerðar út frá því að við enduðum í fimmta sæti í Lengjudeildinni í fyrra. Við toppuðum mjög vel á réttum tíma þá, rúlluðum yfir úrslitakeppnina, og tókum það með okkur. Við áttum frábært undirbúningstímabil, náðum í mjög góð úrslit og fylltum í götin sem við þurftum. Við komum „cocky“ til leiks og spárnar hjálpuðu okkur. Það hafði enginn trú á að við myndum vinna leik nema við,“ segir Sindri Snær en viðtalið við hann má sjá hér að neðan. Klippa: „Spárnar hjálpuðu okkur“ Framan af móti virtust ýmsir bíða eftir að blaðran springi hjá Keflvíkingum og styrktust í þeirri trú þegar liðið steinlá í Vestmannaeyjum í lok maí, 6-1. „Það var versti leikurinn okkar. Allt í apaskít og skrítin stemning í loftinu. Við vorum bara ekki með. En það var bara einn leikur. Það er ástæðan fyrir því hvernig okkur hefur gengið. Við erum fljótir að svara fyrir okkur, höfum ekki átt tvo slæma leiki í röð.“ „Held að það sé ástæðan fyrir þessu góða gengi“ Fyrir tímabilið spenntu Keflvíkingar bogann hátt í leit að leikmönnum og reyndu meðal annars að fá Elías Má Ómarsson og Arnór Ingva Traustason heim, þegar ljóst var að þeir kæmu til Íslands eftir langan atvinnumansferil. Það gekk ekki eftir en aðrir leikmenn hafa styrkt hópinn. Þá segir Sindri það hjálpa Keflavíkurliðinu mikið að hafa haldið sama þjálfarateymi í rúm þrjú ár, eftir brotthvarf Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar, en það mynda þeir Haraldur Freyr Guðmundsson, Hólmar Örn Rúnarsson og Ómar Jóhannsson. „Síðan höfum við haft 10-12 manna kjarna í hópnum frá því eftir fallið 2023, og haft svo 3-4 nýja leikmenn í byrjunarliðinu. Ég held að það sé ástæðan fyrir þessu góða gengi. Þrjú ár saman er mikill tími í íslenskum fótbolta, sérstaklega fyrir lið sem er ekki að verða Íslandsmeistari mörg ár í röð. Við höfum fengið að halda sömu leikmönnum, bætt ofan á það, og svo er rosalega góður andi í klefanum.“ „Keflavík er að búa sig undir að bæta í“ Utan vallar hefur þó verið kallað eftir betri stemningu. Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar, gagnrýndi stuðningsmenn Keflavíkur í sumar fyrir dræma aðsókn á leiki, á meðan að innan vallar væri liðið að spila skemmtilegan fótbolta og ná frábærum árangri. „Það sem er gott við andann í stúkunni er að sama fólk er duglegt að mæta aftur og aftur. Síðustu leiki hefur svo bara verið góð mæting, og maður finnur aukakraft þegar það er vel mætt á pallinn og í stúkuna. Þeir sem mæta styðja okkur vel og við látum þetta ekki trufla okkur. Ég veit að það mun bara bætast í ef við höldum áfram á þessari braut,“ segir Sindri. Hann segir Keflvíkinga staðráðna í að láta til sín taka í efri hlutanum en þar er fyrsti leikur á útivelli gegn sjálfum Íslandsmeisturum Víkings annað kvöld. „Við ætlum áfram að bjóða upp á skemmtilegar frammistöður og Keflavík er að búa sig undir að bæta í. Við ætlum ekki að láta deigan síga núna, höldum áfram og spilum skemmtilegan fótbolta, og þá fáum við fleiri áhorfendur.“
Besta deild karla Keflavík ÍF Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira