„Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Stefán Árni Pálsson skrifar 11. september 2026 12:02 Magnús Már ætlar að taka þennan bikar heim í kvöld. vísir/anton „Það er klárlega gleði og mikil stemning fyrir leiknum, bara tilhlökkun að fara að keppa hérna á Laugardalsvelli. Við höfum frábærar minningar frá því að við unnum Keflavík og skrifuðum nýjan kafla í fótboltanum í Mosfellsbæ fyrir tveimur árum. Frábær minning með stuðningsmönnum okkar hérna og við erum að skrifa nýjan kafla í fótboltanum í Mosó,“ segir Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, fyrir bikarúrslitaleikinn gegn Breiðabliki í kvöld.
Leikurinn hefst klukkan 19:00. Afturelding hefur nú þegar tryggt sér sigur í Lengjudeildinni og verður í deild þeirra bestu næsta sumar. En sigur í kvöld gæti gert tímabilið algjörlega ógleymanlegt. „Við höfum mikla trú á því sem við erum að gera og það hefur gengið vel í sumar. Það er mikið sjálfstraust í hópnum og ég vona að það sjáist í leiknum. Við erum búnir að undirbúa leikinn vel undanfarna daga og ég hef það mikla trú á strákunum að ég hef ekki nokkurn vafa um það að við munum eiga góðan leik.“ Margir vilja meina að pressan sé öll á Blikunum í kvöld, en er Magnús sammála því? „Ef þú horfir í sögubækurnar þá hefur einu sinni gerst að lið í neðri deild vinni bikarinn og það var fyrir 55 árum, árið 1971, 18 árum áður en ég fæddist. Það hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik.“ En lítið hefur gengið upp hjá Blikum í Bestu-deildinni undanfarnar vikur. „Ég horfi bara þannig á Breiðablik sem er með gott lið, góða leikmenn og góða þjálfara. Við erum minna að spá í þeim, við erum meira að spá í okkur. Við höfum verið að spila úrslitaleiki undanfarin ár í úrslitakeppninni, mikið af stórum leikjum og við elskum stóra leiki. Við erum að fara í þriðja skipti á Laugardalsvöll í úrslitaleik á fjórum árum. Þannig að bæði leikmennirnir og við í þjálfarateyminu og allir í kringum félagið búa allir að þeirri reynslu.“ Klippa: „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“
Mjólkurbikar karla Breiðablik Afturelding Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira