Kourani farinn úr landi Árni Sæberg skrifar 11. september 2026 11:41 Mohamad Kourani má ekki koma aftur til Íslands næstu þrjátíu árin. Vísir Mohamad Th. Jóhannessyni, áður Kourani, hefur verið veitt reynslulausn eftir að hafa afplánað einn þriðja af átta ára fangelsisdómi og honum hefur verið fylgt til Sýrlands.
Kourani var dæmdur í átta ára fangelsi í júlí árið 2024 fyrir tilraun til manndráps í versluninni OK Market í Reykjavík í mars sama ár og fjölmörg önnur brot. Hann hefur nú afplánað einn þriðja refsingar sinnar. Þann 8. september hlaut hann reynslulausn og var í kjölfarið fylgt til heimalands síns Sýrlands. Hann sætir 30 ára endurkomubanni inn á allt Schengen-svæðið. Veit ekki betur en að heimferðin hafi gengið vel Þetta staðfestir Böðvar Einarsson, staðgengill forstjóra Fangelsismálastofnunar, í samtali við fréttastofu. Hann segir að brottvísun Kouranis hafi verið á ábyrgð fylgda- og heimferðardeildar Ríkislögreglustjóra en eftir því sem hann komist næst hafi heimferð hans gengið snurðulaust fyrir sig. Reynslulausn Kouranis og brottvísun byggja á bráðabirgðalögum dómsmálaráðherra, sem heimila reynslulausn að lokinni afplánun eins þriðja refsidóms, að því gefnu að ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun liggi fyrir. Á þriðja tug verið sleppt Að sögn Böðvars hefur á þriðja tug fanga verið veitt reynslulausn á grundvelli laganna frá því að þau voru samþykkt þann 1. júní síðastliðinn. Meðal þeirra er Angjelin Sterkaj sem var sleppt úr haldi í ágúst, eftir að hafa afplánað einn þriðja sextán ára dóms fyrir aftöku í Rauðagerði árið 2021. Brottvísun Sterkaj sætti nokkurri gagnrýni á sínum tíma, meðal annars frá Sigríði Á. Andersen þingmanni, sem sagðist ekki hafa órað fyrir því að bráðabirgðaákvæði dómsmálaráðherra myndi leysa menn úr haldi eftir svo alvarlega glæpi. Þá sagði Helgi Magnús Gunnarsson, fyrrverandi vararíkissaksóknari, að með þessu væri verið að senda röng skilaboð til kaldrifjaðra morðingja. Fréttin hefur verið uppfærð.
Mál Mohamad Kourani Fangelsismál Tengdar fréttir Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Fangelsismálastjóri fagnar lagabreytingu sem heimilar Fangelsismálastofnun að veita föngum reynslulausn þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn ef fyrir liggur ákvörðun um að vísa þeim úr landi. Áhyggjur af afslætti af refsingum séu skiljanlegar en Fangelsismálastofnun telji ástæðu til að nýta heimildina eins og kostur er í það ár sem hún gildir. 3. júní 2026 17:07 Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Drögum að frumvarpi um fullnustu refsinga, sem varðar brottvísun og afplánun erlendra fanga hefur verið dreift í samráðsgátt stjórnvalda. Í drögunum er meðal annars gert ráð fyrir tímabundinni heimild til að veita erlendum föngum, sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi að afplánun lokinni, reynslulausn þegar aðeins einn þriðji hluti refsitímans er liðinn. Samkvæmt gildandi lögum þarf helmingi afplánunar að vera lokið til að veita megi reynslulausn, en frumvarpsdrögin gera ráð fyrir að viðkomandi verði vísað úr landi þegar í stað við reynslulausn. 13. febrúar 2026 15:09 Sýrlendingar samþykkja að taka við Kourani Yfirvöld í Sýrlandi hafa samþykkt að taka við Mohamad Kourani, sem var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir rúmu ári, verði hann sendur þangað. Nú stendur það aðeins á náðunarnefnd að hann verði fluttur úr landi og settur í endurkomubann í áratugi. 16. október 2025 17:17 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kourani farinn úr landi Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Sjá meira
Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Fangelsismálastjóri fagnar lagabreytingu sem heimilar Fangelsismálastofnun að veita föngum reynslulausn þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn ef fyrir liggur ákvörðun um að vísa þeim úr landi. Áhyggjur af afslætti af refsingum séu skiljanlegar en Fangelsismálastofnun telji ástæðu til að nýta heimildina eins og kostur er í það ár sem hún gildir. 3. júní 2026 17:07
Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Drögum að frumvarpi um fullnustu refsinga, sem varðar brottvísun og afplánun erlendra fanga hefur verið dreift í samráðsgátt stjórnvalda. Í drögunum er meðal annars gert ráð fyrir tímabundinni heimild til að veita erlendum föngum, sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi að afplánun lokinni, reynslulausn þegar aðeins einn þriðji hluti refsitímans er liðinn. Samkvæmt gildandi lögum þarf helmingi afplánunar að vera lokið til að veita megi reynslulausn, en frumvarpsdrögin gera ráð fyrir að viðkomandi verði vísað úr landi þegar í stað við reynslulausn. 13. febrúar 2026 15:09
Sýrlendingar samþykkja að taka við Kourani Yfirvöld í Sýrlandi hafa samþykkt að taka við Mohamad Kourani, sem var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir rúmu ári, verði hann sendur þangað. Nú stendur það aðeins á náðunarnefnd að hann verði fluttur úr landi og settur í endurkomubann í áratugi. 16. október 2025 17:17