Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Valur Páll Eiríksson skrifar 12. september 2026 10:03 Gunnar Jarl Jónsson var fimm sinnum valinn dómari ársins á Íslandi áður en hann hætti 2017. Þjálfunin er tekin við af blístrunni. vísir/anton Fyrrverandi alþjóðadómarinn Gunnar Jarl Jónsson er nýr yfirþjálfari Þróttar í Reykjavík. Hann hefur þjálfað hjá félaginu um nokkurra ára skeið.
Gunnar Jarl var alþjóðadómari hjá FIFA á árunum 2011 til 2017 og að öðrum ólöstuðum fremsti dómari landsins þegar hann setti flautuna óvænt á hilluna haustið 2017. Hann sagði þá ástríðuna ekki nægilega mikla til að halda starfinu áfram. Hann hefur þó ekki sagt skilið við fótboltann og hefur sinnt yngri flokka þjálfun hjá Þrótti undanfarin ár. Þróttur hefur lagt mikið í yngri flokka þjálfun félagsins á síðustu árum svo eftir hefur verið tekið. Þórður Einarsson sagði í sumar upp störfum sem yfirþjálfari Þróttar og Þróttur tilkynnti í vikunni að Gunnar Jarl, annar Breiðhyltingur, tæki við. „Gunnar Jarl sem hefur starfað sem þjálfari Þróttar og á að baki afar farsælan feril hjá félaginu. Hann hefur um árabil lagt mikla alúð í starf með börnum og unglingum, haft sterk áhrif á þróun leikmanna, liðsheildar og þeirrar menningar sem við viljum sjá í starfi félagsins. Gunnar Jarl hefur starfað sem kennari við Langholtsskóla síðasta áratug og hefur sömuleiðis starfað fyrir KSÍ að dómaramálum og fyrir UEFA. Það er því mikið fagnaðarefni að fá Gunnar Jarl í þetta lykilhlutverk innan félagsins,” segir meðal annars í yfirlýsingu Þróttar sem má sjá í heild að neðan. Nóg er um að vera hjá Þrótturum þessa helgina. Kvennalið félagsins mætir Grindavík/Njarðvík í úrslitaleik bikarkeppninnar í dag og á morgun mætir karlaliðið Njarðvík í síðari leik undanúrslita umspils Lengjudeildarinnar.
Þróttur Reykjavík Lengjudeild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira