Harðvígar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Valur Páll Eiríksson skrifar 12. september 2026 08:00 Norðurstúkan, Curva Nord, á Ólympíuvellinum er venjulega yfirfull af fótboltabullum sem öskra úr sér lifur og lungu í 90 mínútur. Hún situr nú tóm á meðan Lazio spilar sína heimaleiki. Antonietta Baldassarre/Insidefoto/LightRocket via Getty Images Fámennt verður á Ólympíuleikvanginum í Róm þegar Lazio tekur á móti AC Milan í stórleik í ítölsku A-deildinni í dag. Lazio er með fullt hús á toppi deildarinnar en samt neita stuðningsmenn liðsins að mæta á völlinn. Aðeins sex þúsund manns sáu eina heimaleik Lazio á tímabilinu í deildinni til þessa er liðið vann 1-0 sigur á Genoa. Segja má að þeir sem hafi látið sjá sig hafi verið eins og krækiber í helvíti á rúmlega 70 þúsund sæta Ólympíuvelli í Róm. Lazio hefur byrjað tímabilið glimrandi vel undir stjórn Gennaro Gattuso sem tók við í sumar. Lazio er með fullt hús stiga við topp deildarinnar eftir þrjá leiki. Það á mikilvægan stórleik fyrir höndum við AC Milan klukkan 16:00 í dag en aðeins er búist við um 15 þúsund manns á leikinn. Þar af eru 10 þúsund stuðningsmenn gestanna frá Mílanó. Leikmenn Lazio höfðu ekki marga til að fagna með eftir sigur á Genoa fyrir tveimur vikum.Marco Rosi - SS Lazio/Getty Images Ástæðan er Claudio Lotito, sem hefur verið eigandi Lazio frá árinu 2004, og harðvígar deilur hans við stuðningsmenn. Gremja í hans garð vegna meintrar vanvirðingar og metnaðarleysis gagnvart félaginu hefur grasserað í áraraðir. Þunglyndisleg staða Harðasti stuðningsmannahópurinn, ultras-hópur Lazio, kallaði eftir aðgerðum fyrir leik við Genoa í lok janúar á þessu ári. Þar mættu aðeins fimm þúsund manns, 3.400 manns mættu á leik við Atalanta tveimur vikum síðar og aðeins 2.000 á leik við Sassuolo í mars, við súrreallískar aðstæður. Samstaðan er því mikil á meðal stuðningsmanna félagsins líkt og sjá má á tölunum. Það er í samræmi við einkennisorð þeirra sem styðja félagið: ‘Se i Laziali sono uniti, non verranno mai sconfitti’, sem má þýða sem „ef stuðningsmenn Lazio standa saman mun ekkert sigra okkur.“ Albert Guðmundsson skoraði sigurmarkið í frumraun sinni fyrir Lazio í vikunni. Stuðningsmenn fjölmenntu þangað, enda útileikur sem fram fór í Udine. Þeir neita hins vegar að mæta á heimavöllinn.Vísir/Getty Maurizio Sarri, þáverandi þjálfari liðsins, sem er í miklum metum á meðal stuðningsmanna, sagði stöðuna þunglyndislega og að hún gæti ekki viðhaldist til lengri tíma. Sniðganga ástarinnar vegna Staða stuðningsmanna var ítrekuð fyrir yfirstandandi leiktíð. Ársmiðahöfum fækkaði um 93 prósent milli ára, þar sem færri en 2.500 ársmiðar seldust í sumar, eftir að hafa staðið í 30 þúsund árin þrjú á undan. Mæting á heimaleiki Lazio frá í janúar 30. jan: Genoa - 5.400 14. feb: Atalanta - 3.400 9. mars: Sassuolo - 2.000 4. mars: Atalanta (bikar) - 5.000 15. mars: AC Milan - 50.000 4. apríl: Parma - 6.000 27. apríl: Udinese - 4.000 9. maí: Inter - 23.979 23. maí: Pisa - 6.886 16. ágúst: Mantova (bikar) - 6.286 30. ágúst: Genoa - 6.058 Meðaltal: 10.819 Meiriháttar mótmæli voru þá skipulögð í júlí. Þar kölluðu Lazio-menn „Libera la Lazio“ – „Frelsið Lazio“. Samanborið við tvö þúsund selda ársmiða komu 20 þúsund stuðningsmenn félagsins saman á strætum Rómarborgar og kölluðu eftir breytingum. Þeir segja einskæra ást (estremo atto d’amore) hvatninguna á bakvið þá ákvörðun að skilja völlinn eftir tóman. Hvað eru menn svona ósáttir við? Stuðningsmenn Lazio hafa löngum sakað Lotito um skort á metnaði. Félagið varð ítalskur meistari árið 2000 og skartaði þá mörgum af skærustu stjörnum heimsfótboltans. Pavel Nedved, Juan Sebastian Verón og Alessandro Nesta eru örfá dæmi um leikmenn liðsins í byrjun aldarinnar. Byrjunarlið Lazio fyrir úrslitaleik í Evrópukeppni bikarhafa vorið 1999. Þar voru engir aukvisar.Eftir röð: Alessandro Nesta, Christian Vieri, Sinisa Mihajlovic, Giuseppe Pancaro, Luca Marchegia og Roberto Mancini.Neðri röð: Dejan Stankovic, Giuseppe Favalli, Matias Almeyda, Pavel Nedved og Marcelo Salas.Richard Sellers/Sportsphoto/Allstar via Getty Images Á undanförnum árum hefur liðinu tekist að eiga sérlega góð tímabil inn á milli en þeim hefur aldrei verið fylgt eftir með styrkingu og sókn eftir frekari framfaraskrefum, samkvæmt stuðningsmönnunum. Tímabilin 2015-16, 2018-19, 2020-21 og 2023-24 eru öll dæmi um slíkt. Þar næst góður árangur en því er ekki fylgt eftir. Áðurnefndur Sarri stýrði Lazio í annað sæti deildarinnar vorið 2024 og kallaði eftir sterkum leikmönnum til að sækja að titlinum árið eftir. Hann vildi þá fá Domenico Berardi og Piotr Zielinski en hvorugur kom. Sarri sagðist hafa „beðið um leikmann A en svo þurft að velja milli C og D.“ Maurizio Sarri var vinsæll hjá stuðningsmönnum og náði fínum árangri. Hann fékk hins vegar ekki stuðninginn sem þurfti til að taka næsta skref.Marco Iacobucci/SOPA Images/LightRocket via Getty Images Lotito hafi þá ekkert lagt til innviða félagsins; akademíunnar, æfingasvæðisins eða slíks og stöðnunin sé algjör á meðan önnur lið taki framfaraskref. „Lotito hefur alltaf farið gegn stuðningsmönnunum og sett eigin hagsmuni ofar þeim hjá félaginu,“ segir blaðamaðurinn Raniero Altavilla. Stuðningsmenn Lazio segja hann metnaðarlausan og að Lotito vanvirði ekki aðeins þá heldur einnig hefðir og sögu félagsins. Þarf að bjarga pólitíska ferlinum? Sniðganga stuðningsmanna Lazio nær þá út fyrir fótboltavöllinn. Hún hefur ekki aðeins áhrif á veski Lotito og ítalska félagsins sökum dræmrar miðasölu þar sem áhrifa gætir einnig hvað varðar pólitískan feril eigandans. Lotito er öldungardeildarþingmaður fyrir miðhægri flokkinn Forza Italia eftir að hafa hlotið kjör árið 2022. Fjölmargir borðar hafa sést víða um Rómarborg þar sem er skrifað: „Engin atkvæði fyrir Forza Italia ef Lotito er áfram hjá Lazio“. Eigandinn Claudio Lotito er hér ásamt Miroslav Klose þegar hann lék með Lazio á sínum tíma.vísir/getty Lotito er því að verða dragbítur á eigin flokk og gæti kostað hann tugþúsunda atkvæða frá stuðningsmönnum Lazio sem almennt eru hægra megin í pólitíska lífinu, enda klúbburinn og stuðningsmennirnir verið tengdur við fasisma í áraraðir. Hvað gerist næst? Stuðningsmenn Lazio segja ást að baki því að þeir taki þá sársaukafullu ákvörðun að mæta ekki á völlinn. Ekki er útlit fyrir að mótmælin og sniðganga þeirra hætti á næstunni og virðast þeir staðráðnir í því að neyða Lotito á brott. Undanþága var gerð á sniðgöngunni þegar AC Milan kom í heimsókn í vor og 50.000 manns létu sjá sig en mottó samstöðu hefur aldrei verið eins sterkt hjá stuðningsmönnum sem halda sig fjarri Olimpico í dag. Hvort og hvenær það raungerist að Lotito raunverulega hverfi á braut verður fróðlegt að fylgjast með en Albert og félagar þurfa líklega að venja sig á það að spila nánast fyrir luktum dyrum næstu mánuði. Ítalski boltinn Fréttaskýringar Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Íslenski boltinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Enskt hlaðborð á laugardegi Sport „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Sjá meira
Mæting á heimaleiki Lazio frá í janúar 30. jan: Genoa - 5.400 14. feb: Atalanta - 3.400 9. mars: Sassuolo - 2.000 4. mars: Atalanta (bikar) - 5.000 15. mars: AC Milan - 50.000 4. apríl: Parma - 6.000 27. apríl: Udinese - 4.000 9. maí: Inter - 23.979 23. maí: Pisa - 6.886 16. ágúst: Mantova (bikar) - 6.286 30. ágúst: Genoa - 6.058 Meðaltal: 10.819
Ítalski boltinn Fréttaskýringar Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Íslenski boltinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Enskt hlaðborð á laugardegi Sport „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Sjá meira