„Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 11. september 2026 21:52 Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Blika, er nú búinn að vinna svo gott sem allt sem hægt er að vinna með liðinu. Vísir/Guðmundur Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, var hrærður og meyr er hann mætti í viðtal eftir að liðið tryggði sér bikarmeistaratitil karla í knattspyrnu í kvöld. „
Tilfinningin er æðisleg. Maður er hrærður, sturluð mæting, under the lights. Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál,“ sagði Höskuldur í leikslok. Eftir að hafa spilað svo gott sem allan sinn feril með Breiðabliki er Höskuldur nú loksins búinn að vinna allt sem hægt er að vinna með liðinu hér á landi. Hann segir að nú sé hann að vissu leyti búinn að haka í öll box. „Að einhverju leyti, klárlega. Mig hefur lengi langað í þennan helvítis titil, og í þennan viðburð. Ég hef alltaf talað um það, bara að komast hérna á þennan viðburð,“ sagði Höskuldur. „Ég var staddur úti í Svíþjóð og fylgdist með BlikarTV árið 2018 bara til að fylgjast með leikdagsupplifuninni úr fjarska. Það var geðveikt og manni langaði svo í þetta móment. Aðdragandan og allan daginn í kringum þetta. Leikinn sjálfann að sjálfsögðu. Þetta móment og ég tala nú ekki um kvöldið.“ Mættu klárir en þurftu að þjást Sjálfur skoraði Höskuldur fyrsta mark leiksins eftir aðeins rúmlega þriggja mínútna leik. „Mér fannt við bara mæta með gott spennustig. Ef ég má sletta þá fannst mér við mæta on the front foot. Bara á tánum og mér fannst við taka frumkvæðið og þora strax frá byrjun. Ég held að við höfum bara náð aðeins að vanka þá strax frá upphafi. Við náum að skora og gengum á lagið. Vorum eiginlega klaufar að bæta ekki í,“ sagði Höskuldur. „Þeir í rauninni ranka ekkert við sér fyrr en í seinni hálfleik og eru þá auðvitað bara geggjaðir. Við vitum það alveg að þeir eru með frábært fótboltalið og þá voru menn að þjást og berjast fyrir hvorn annan. Þetta var bara fyrirmyndarleikur.“ Afturelding náði svo að minnka muninn þegar skammt var til leiksloka og Höskludur viðurkennir að þá hafi farið um menn. „Auðvitað fór um mann. En mér fannst við bregðast vel við því og sýna mikinn andlegan styrk. Sérstaklega í ljósi þess að það hefur verið svolítið mynstrið í sumar að við höfum verið að fá á okkur mörk bara 2-3 mínútum seinna. Jafnvel 2-3 mörk. En þetta var gott svar við döpru gengi undanfarið. Að mæta þegar það skiptir máli á stóra sviðinu,“ sagði Höskuldur að lokum áður en hann þurfti frá að hverfa til að taka við bikarnum góða.
Íslenski boltinn Mjólkurbikar karla Breiðablik Afturelding Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira