Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Aron Guðmundsson skrifar 12. september 2026 10:32 Fannar Berg Gunnólfsson er þjálfari AB í Danmörku. Hann tók við starfinu af Jóhannesi Karli Guðjónssyni. Mynd: AB Forráðamenn danska knattspyrnuliðsins AB í Danmörku eru ósáttir með umfjöllun danska vefmiðilsins Bold sem sagði Fannar Berg Gunnólfsson, þjálfara AB, hafa veist að dómurum eftir leik liðsins gegn Kolding á dögunum.
Fannar fékk að líta rauða spjaldið í leiknum fyrir að sparka í auglýsingaskilti við völlinn og var málið tekið fyrir og Íslendingurinn dæmdur í tveggja leikja bann. AB unir niðurstöðu aganefndar danska knattspyrnusambandsins en er hins vegar ekki sátt við þá umfjöllun sem málið fékk í Bold og segir hana „öfgafulla rangtúlkun“. Búið sé að fara yfir myndefni frá leiknum. Félagið styður Fannar í málinu og segir hann aldrei áður hafa fengið rautt spjald á sínum ferli sem þjálfari. „Fannar vissi ekki að hann mætti ekki fara inn á völlinn eftir leik í kjölfar þess að hafa fengið rautt spjald. Fannar ætlaði að biðja dómara leiksins afsökunar en var meinaður aðgangur,“ segir í yfirlýsingu AB sem má lesa í heild sinni hér. Bold vitnar í úrskurð aganefndar danska knattspyrnusambandsins í sinni frétt af málinu en segir að auki að Fannar hafi reynt að nálgast dómara leiksins í leikmannagöngunum á leikvanginum sem spilað var á. Öryggisverðir hafi stöðvað för hans þar. „Hann hefur brennandi áhuga á starfi sínu og vill einfaldlega skilja hvers vegna hlutirnir gerast og þróast eins og þeir gera. Ef það hefur komið óviðeigandi út í þessu tilfelli vitum við að hann harmar það.“
Danski boltinn Íslendingar erlendis Fótbolti Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Sjá meira