Valshjartað slær enn hjá hetju KR Aron Guðmundsson skrifar 12. september 2026 16:44 Valgerður með sínu fólki í stúkunni í dag eftir að hún hafði gulltryggt Bestu deildar sætið fyrir KR-inga. Vísir/Kolbeinn Tumi Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir var hetja KR í dag þegar að liðið tryggði sér sæti í Bestu deildinni á næsta tímabili með 1-0 sigri gegn Keflavík. Valgerður, sem skoraði eina mark leiksins, er Valsari í grunninn en segir KR-hjartað sterkara. „
Bara beint að djamma,“ sagði Valgerður í samtali við Vísi aðspurð hvaða hugsanir velkist um eftir svona sigur þar sem að Bestu deildar sæti var tryggt. „Maður er svolítið í fagnaðarvímu, þetta er svo kærkomið. Við erum búnar að leggja svo hart að okkur og gott að fá viðurkenninguna á því að við gátum þetta. Eftir að hafa dottið niður í aðra deild, komið okkur síðan upp eftir mikið mótlæti. En við risum upp saman og þetta er ógeðslega gaman, ógeðslega skemmtilegt.“ Lið KR sem er búið að tryggja sér sæti í Bestu deildinniMynd: Mummi Lú Fyrir leik dagsins var KR með örlögin í sínum höndum í 2. sæti deildarinnar og vissi að jafntefli myndi líklegast nægja til að tryggja Bestu deildar sætið en að sigur myndi gulltryggja það. Voruð þið stressaðar? Þið þurftuð að bíða lengi eftir markinu. „Það var aldrei neitt panikk á okkur samt að við myndum ekki ná markinu. Þetta var auðvitað pínu stress en það var samt, þetta var alltaf að fara að koma. Við vissum það.“ Valsari með KR-hjarta Það var vel mætt á Meistaravelli í dag. KR-ingar staðráðnir í að hjálpa sínu liði upp í efstu deild. Það var frábær stemning á Meistaravöllum í dag í rjómablíðu.Mynd: Mummi Lú „Þetta er bara geggjað. Ekkert betra en að fagna með okkar fólki sko,“ segir Valgerður sem er í grunninn Valsari. „Stórsvik. Nei, nei. Bara geggjað. Hjartað einhvern veginn stækkar alltaf bara. En svarthvítt samt. Valsarinn er alltaf í manni en samt sterkara KR-hjarta.“ Liðið geggjað og stemningin ekki síðri Valgerður skoraði eina mark leiksins á 76. mínútu. Hvernig er að dúkka upp, fá boltann í dauðafæri og setja markið sem klárar þetta? „Það er alltaf gaman. Bara partur af leiknum einhvern veginn. Bara geggjað.“ Kara Guðmundsdóttir var markahæsti leikmaður KR á tímabilinu með tólf mörk í Lengjudeildinni. Hún er einn af lykilpóstunum í liðinu ásamt systur sinni, Kötlu Guðmundsdóttur. Dætur Guðmundar Benediktssonar og Kristbjargar Ingadóttur.Mynd: Mummi Lú Valgerður er að upplagi kantmaður og reyndi fyrir sér í Bandaríkjunum á sínum tíma og er nú á leið í Bestu deildina með KR. Og hvað gerist núna? Þið eruð komnar upp í Bestu deildina. „Við bara höldum áfram, stöndum saman. Ég held að það verði bara alltaf staðan. Við rísum upp saman. Það er bara geggjuð stemning yfir þessu, þetta er geggjað lið og bara eintóm gleði. Stemningin mikil eftir miklar raunir KR undanfarin ár.Mynd: Mummi Lú Og verður gaman í kvöld? „Það verður mjög gaman.“
KR Besta deild kvenna Lengjudeild kvenna Íslenski boltinn Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira