„Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 12. september 2026 18:05 Sólveig Lára Kjærnested var ánægð með sigur gegn HK. ÍR „Tilfinningin er frábær. Liðssigur í dag og við lögðum mikla vinnu í þennan leik og bara gott að uppskera,“ sagði kampakát Sólveig Lára Kjærnested, leikmaður ÍR, eftir tveggja marka sigur á HK í Kórnum. Lokatölur 18-20 þar sem ÍR var með yfirhöndina í leiknum. „
Við náðum þarna fjögurra til fimm marka forystu sem við héldum og vorum skynsamar. Þetta HK-lið er hörku lið. Þær spila hörku vörn, eru líkamlega sterkar, í góðu standi og eru bara erfiðar við að eiga. Mér fannst lítið skilja á milli, við náum forystu og náum að halda henni nokkuð vel. Smá skjálfti í lokinn, en við sigldum þessu heim,“ sagði Sólveig Lára. Þegar u.þ.b. mínúta var eftir af leiknum var aðeins eins marks munur á liðunum og ÍR í sókn. Lauk þeirri sókn með því að Sólveig Lára fór inn úr hægra horninu og vippaði yfir Elísabetu Millý Elíasardóttur og gerði í raun út um endurkomu hjá HK í leiknum með markinu. Skoraði Sólveig Lára fjögur mörk í leiknum úr sex skotum, en þrjú af mörkunum voru vippur yfir markverði HK, sem þykir nokkuð snyrtileg afgreiðsla í handbolta. „Mér leið vel í dag og alltaf gott að setja fyrsta inn og þá fer ákveðinn skjálfti úr manni. Bara gott að sjá hann inni. Þær eru ekkert ofboðslega ánægðar markmennirnir með þrjár vippur, en svona er þetta bara.“ Sólveig Lára er nú að leika sinn annað tímabil með ÍR eftir að hafa verið þjálfari liðsins þar á undan. Er hún aldursforseti liðsins og sennilega í allri Olís-deildinni, en er hún 40 ára. Sólveig Lára segir enga ástæðu fyrir sig að fara segja það gott í handboltanum. „Þetta er ógeðslega skemmtilegt og ógeðslega gaman að vera með þessum stelpum og á meðan ég get þetta þá af hverju ekki. Ég er klárlega í standi og get þetta og þetta er skemmtilegra en að fara á hlaupabretti í ræktinni. Þetta er bara gaman,“ segir Sólveig Lára sem á 63 landsleiki að baki. Aðspurð út í markmið ÍR á þessu tímabili, hefur Sólveig Lára þetta að segja. „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum og við erum með meiri trú en fólk í kringum okkur virðist hafa, eins og í handbolta hreyfingunni. Fyrsta markmið er bara efri hlutinn og svo eigum við okkur allskonar draumamarkmið sem okkur langar að ná.“
Olís-deild kvenna ÍR Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Sjá meira