Golf

Horfðu á golf­mót í körfubíl

Andri Broddason skrifar
Bændurnir komu sér vel fyrir í körfubíl til að horfa á bestu kylfinga heims.
Bændurnir komu sér vel fyrir í körfubíl til að horfa á bestu kylfinga heims. Skjáskot/DP World Tour

Þrír hringir eru búnir af Opna írska mótinu á DP World mótaröðinni í golfi. Leikið er á Trump International vellinum og mættu bændur á lyftara til að horfa á mótið.

Trump International golfvöllurinn á Írlandi er staðsettur á austurströnd Írlands en völlurinn er þar meðfram sjónum. Á sumum stöðum vallarins eru stór tún og bændur sem rækta túnin en þeir hafa notað skemmtilegar aðferðir til þess að horfa á mótið.

Fimm félagar voru búnir að keyra vinnuvél með körfu að vellinum þar sem þeir voru búnir að setja stóla í körfuna og létu fara vel um sig. Þeir lyftu körfunni sem þeir sátu í upp í loftið svo þeir fengju betra útsýni yfir völlinn og sjá nokkra af bestu kylfingum heims leika á frábærum velli.

Heimamaðurinn Shane Lowry er efstur á sextán höggum undir pari þegar þrír hringir eru búnir. Daninn Jakob Olesen er fjórum höggum á eftir honum og Jaoquin Niemann frá Síle er á níu höggum undir pari. Rory McIlroy hefur ekki náð að koma sér á strik og er í fimmtugasta sæti á tveimur höggum yfir pari.

Úrslitin ráðast á lokahring Opna írska mótsins í golfi á morgun en hann er sýndur í beinni útsendingu á sportrásum Sýnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×