„Við komum svo voða skrítnir inn í seinni hálfleikinn“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 13. september 2026 17:11 FH - Þór Akureyri. Besta deild karla sumar 2026 fótbolti KSÍ. „Frábær byrjun. Erum gjörsamlega með þá hérna í byrjun og skorum þetta mark. Leiðinlegt að ná ekki að skilja meira eftir í þessum kafla því það voru stöður og augnablik til þess að gera meira og refsa þeim enn þá betur,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, eftir tapið.
Eftir góða byrjun á leiknum hjá Þór tóku heimamenn í Val völdin á vellinum. „Eftir markið ná þeir að leysa pressuna betur, við förum að tapa of mikið, erum skrefinu á eftir í of mörgum augnablikum. Hleypum þeim svolítið inn í leikinn og þeir fara að herja aðeins á okkur og ná svo þessu marki. Mér fannst við líklegir eftir það að koma aftur til baka og komast yfir fyrir hálfleik. Komandi inn í hálfleikinn var ég bara mjög ánægður með liðið heilt yfir. Svekktur að missa aðeins tökin á leiknum en fannst við vera betra liðið 65 til 75 prósent af fyrri hálfleiknum. Við komum svo voða skrítnir inn í seinni hálfleikinn og náum aldrei krafti í okkar leik. Náum ekki að hrista upp í þessu með skiptingum. Ekkert þeim að kenna en við náðum ekki að kveikja í þessu og Valsarar tóku þennan leik sannfærandi að lokum. Mér fannst við kærulausir í seinni hálfleik og héldum bara að þetta myndi gerast sjálfkrafa og við eitthvað voða stórir.“ Sigurður Heiðar var óhress með þankagang sinna manna í síðari hálfleik gegn röskum Völsurum. „Við erum að tapa boltanum ótrúlega klaufalega og erum að fá þá hjólandi á okkur trekk í trekk sem var svo sannarlega ekki planið. Þetta var það sem við ætluðum að koma í veg fyrir að fá þessi skyndiupphlaup á okkur en við náðum því ekki. Við vorum klaufalegir þegar við vorum að tapa boltanum illa og kláruðum sóknirnar okkar illa og þá bara gerist þetta.“ Sigurður Heiðar tekur þó margt jákvætt úr frammistöðu sinna manna. „Hins vega fullt af góðum hlutum. Auðvitað er slæmi kaflinn okkar í þessum leik langur en mér fannst góði kaflinn það góður að ég ætla að taka það út úr honum. Þetta er allt öðruvísi lið en hin liðin sem við erum að fara að mæta. Þetta er lið sem refsar þér svakalega illa og við munum taka það góða úr þessum leik inn í næstu leiki.“ Næsti leikur Þórs er gegn erkióvinunum í KA næsta laugardag, en liðin eru bæði í blóðugri fallbaráttu. Aðeins eitt stig skilur liðin að og er KA í fallsæti stigi á eftir Þór. „Þetta verður stór leikur og við erum í þessu til að spila stóra leiki. Það verður spenna á Akureyri í vikunni og fram að þessum leik. KA liðið er allt öðruvísi lið en Vals liðið. Ég held að við séum með þannig trú á því sem við erum að gera vel að við komum bara mjög sperrtir inn í leikinn um næstu helgi. Við munum fá fólkið með okkur og andann og þetta verður alvöru stríð þarna fyrir norðan.“
Besta deild karla Íslenski boltinn Þór Akureyri Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira