„Allir orðnir vinir í skóginum“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 13. september 2026 23:25 Heimir Guðjónsson er á leiðinni á Laugardalsvöll í leik um sæti í Bestu deild karla. Vísir / Hulda Margrét Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, var ánægður með að hans menn skyldu tryggja sér sæti í úrslitaleik umspilsins um sæti í Bestu deild karla eftir dramatískan sigur á HK í Árbænum. „
Ánægður með sigurinn. Við vorum fínir í fyrri hálfleik og með góð tök á leiknum. Að mínu mati komumst við sanngjarnt yfir,“ sagði Heimir eftir leik. HK sneri hins vegar leiknum sér í vil í síðari hálfleik og komst í 2-1. „Í seinni hálfleik komu þeir bara út og við vorum ekki klárir. Mér fannst þeir töluvert sterkari og þeir skoruðu tvö mörk, sanngjarnt. En við náðum einhvern veginn að kreista þetta fram.“ Heimir sagði innkomu Mána Austmanns hafa skipt miklu máli í síðari hálfleik. „Okkur gekk illa að halda boltanum en Máni kom inn og þá varð meiri ró á boltanum. Hann lagði svo upp markið fyrir Gumma og eftir það snerist þetta náttúrulega um að reyna að hanga á þessu.“ Heimir viðurkenndi að hafa haft áhyggjur þegar HK hafði náð forystunni. „Jú, ég get alveg viðurkennt það. Við réðum illa við löngu boltana og sérstaklega seinni boltann. Í seinni hálfleik unnu þeir nánast alla seinni boltana og það var hreinlega að drepa okkur.“ Mikill hiti var í leiknum undir lokin og alls fóru þrjú rauð spjöld á loft. „Það er fínt að það sé smá hiti í þessu og ég hef gaman af því. Það voru læti en þegar þetta var búið held ég að allir hafi verið orðnir vinir í skóginum.“ Aron Snær Guðbjörnsson fékk sitt annað gula spjald undir lok framlengingarinnar og verður því í leikbanni í úrslitaleiknum. Heimir sagði það vissulega vera skakkafall en Fylkir hafi áður þurft að bregðast við slíkum aðstæðum. „Já, Aron hefur staðið sig vel í sumar eftir að hann kom inn. En við finnum lausnir á því. Við höfum lent í skakkaföllum í sumar og finnum út úr því.“ Fylkir mætir Þrótti í úrslitaleik umspilsins á Laugardalsvelli þar sem sæti í Bestu deild karla verður í húfi.
Fylkir Lengjudeild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira