„Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 14. september 2026 12:01 Ívar Karl Hafliðason, formaður heimastjórnar Seyðisfjarðar og sveitarstjórnarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi. facebook/kaldvík Formaður heimastjórnar Múlaþings segir það hafa komið sér og öðrum fulltrúum Múlaþings í opna skjöldu að starfsleyfi hafi verið gefið út til fiskeldis í firðinum. Það séu vonbrigði að frumvarp um breytingar á lögum um lagareldi hafi ekki gengið í gegn á síðasta vorþingi.
Matvælastofnun og Umhverfis- og orkustofnun veittu félaginu Kaldvík AS rekstrar- og starfsleyfi til fiskeldis í Seyðisfirði á föstudaginn. Formaður Félags um vernd Seyðisfjarðar hefur sagt bæjarbúa á móti sjókvíaeldi og verður leyfið kært. Kaldvík hefur nú leyfi til að ala tíu þúsund tonn af laxi í Seyðisfirði á þremur eldissvæðum. Ívar Karl Hafliðason, formaður heimastjórnar Seyðisfjarðar og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi, segir það ekki svo að allir íbúar Seyðisfjarðar séu ósáttir við þessa niðurstöðu. „Það er kannski erfitt að tala fyrir hönd allra íbúa en það er alveg ljóst að það er hópur sem telur þetta ekki gott fyrir Seyðisfjörð og er mjög hávær. Við fáum þetta verkefni, þessa ákvörðun, í fangið frá ríkinu og okkar verkefni verður dálítið að ná utan um þetta, hvernig menn vilja síðan stíga næstu skref.“ Markmiðið sé að ná eins mikilli sátt í bæjarfélaginu og mögulegt er. Hann segir það að einhverju leyti gott að fá niðurstöðu í málið eftir öll þessi ár. „Þetta eru lok á mjög löngu leyfisveitingarferli sem er búið að vera í gangi í tólf ár og maður hefur alveg fundið svona skoðanir í samfélaginu dálítið sveiflast fram og til baka. Þetta kom okkur líka svolítið á óvart, að leyfið skyldi vera veitt. Við fengum engan fyrirvara á því. Það eru bara þrír dagar síðan leyfið var veitt svo menn eru aðeins að reyna að ná utan um það hvað það þýðir.“ Það komi á óvart að starfsleyfi sé gefið út áður en boðaðar breytingar á lögum um lagareldi gangi í gegn. „Það voru ákveðin vonbrigði að það skyldi ekki klárast á síðasta þingi af því að ég held að við séum öll sammála um að við viljum hafa skýran ramma og kröfur á þessa atvinnugrein. Ég held að það sé enginn á móti því. Það þarf aðeins að uppfæra þessi gömlu lög.“ Hann segir að aðeins tíminn muni leiða í ljós hvort að leyfisveitingin reynist jákvæð eða neikvæð fyrir Seyðisfjörð. „Hvort þetta verði til framtíðar jákvætt eða neikvætt, það er eitthvað sem menn geta kannski sett puttan í loftið og giskað. Ég bara vona það. Þetta er verkefni sem við fáum í fangið og við þurfum sem heimastjórn og vonandi sem samfélag að taka það og gera úr því það sem við getum.“ Hann segir að upplýsingamiðlun og samskipti við íbúa hefðu mátt vera betri: „Múlaþing hefur veitt umsagnir og þær hafa ekki verið hlutlausar. Við höfum alveg bent á að ná þurfi utan um íbúa. Það er alveg ljóst að við erum ekki leyfisveitendur. Umsagnir hafa undanfarið verið samþykktar samhljóða í nefndum og ráðum. Maður vonar að núna þegar þetta er komið að fólk muni koma og reyna að upplýsa íbúa hvernig þetta fer. Auðvitað eru fyrirtæki búin að halda einhverja fundi en það þarf að hreinsa aðeins loftið. Mér finnst stofnanir til dæmis sem veita leyfið ekki hafa verið að útskýra nægilega mikið hvernig þessi ákvörðun er tekin. Það væri gott að skýra ferlið. Það væri mjög gott fyrir marga að vita hvað þetta þýðir. HMS á til dæmis eftir að gefa út byggingarleyfi.“
Múlaþing Fiskeldi Sjókvíaeldi Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fleiri fréttir Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sjá meira