Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar 14. september 2026 13:31 Aldrei nokkurntíman hef ég fengið eins mikið af ábendingum frá áhyggjufullum íbúum um land allt vegna hvers kyns framkvæmda. Sveitarstjórnastigið á greinilega fullt í fangi með eftirlit með óleyfisframkvæmdum. Það sorglega er að þegar hlutirnir eru komnir af stað gerist oft lítið. Skipulagsfulltrúi sveitarfélagsins blandar sér ekki í málið, nágrannar veigra sér við að efna til deilna sín á milli og náttúruverndarsamtök geta ekki kært nema um stjórnvaldsákvörðun sé að ræða. Með öðrum orðum, ef sveitarfélag gefur út framkvæmdaleyfi, þá geta náttúruverndarsamtök látið á það reyna hvort það sé verið að fylgja umhverfis og náttúruverndarlögum. Ef framkvæmt er í leyfisleysi og skipulagsfulltrúi grípur ekki inn í (eins og hann á að gera), getur allt eins verið að enginn nágrannanna kippi sér upp við þetta og þá gerist ekkert. Í raun borgar það sig að henda sér beint í framkvæmdir, það er líklegt að það reddist bara. Ef þú keyrir full og klessir ekki á neinn áttu samt á hættu á að missa prófið. Ef þú sleppir leyfisveitingaferlum og umhverfismati fer það eftir stærð og umfangi verkefnisins en það getur vel gerst að þú verðir ekki krafin um að stoppa eða borga. Ekki nema þú valdir miklum skaða og hann virðist þurfa að vera töluverður. Framkvæmdir eru dyggð og þetta má sjá á orðfæri stjórnvalda sjálfra, þau ryðja úr vegi, höggva á hnúta, rjúfa kyrrstöðu… Minna fer fyrir orðræðu eins og að gæta fjöreggs, stíga varlega til jarðar, meira vinnur vit en strit. Útgefið rekstrarleyfi til sjókvíaeldis í Seyðisfirði var áfall fyrir marga í náttúruverndinni en var að sama skapi viðbúið. Í raun virðist útgáfa rekstrarleyfisins vera formsatriði en stofnunin gaf út strax frá upphafi í frétt RÚV að hún myndi að öllum líkindum veita leyfi. Þá skiptir ekki máli hversu vel og málefnalega VÁ og fleiri rökstyðja andstöðu sína við leyfið. Sama hvaða lög og reglur félögin telja leyfið ekki uppfylla og sama þótt íbúar fjarðarins séu í stórkostlegri andstöðu við framkvæmdina. Það virðist bara vera formsatriði að fara í gegn um þetta ferli svo hægt sé að byrja að byggja. Reynslan sýnir okkur líka að um leið og starfsemi er komin af stað virðist meðalhófsreglan trompa allt. Sjaldan er getið um meðalhóf í náttúru og dýraníð. Nú í liðnum mánuði. 23. júní sl komst Úrskurðanefnd Umhverfis og Auðlindamála að þeirri niðurstöðu að Landsvirkjun bæri að fara í umhverfismat á leiðigarði sem ríkisfyrirtækið hyggst leggja innan friðlandsins Þjórsárvera. Náttúrugrið kærðu þar ákvörðun Skipulagsstofnunnar. Síðan þá hefur Skipulagsstofnun skipt um nafn og verið felld inn í Húsnæðis og Mannvirkjastofnun. Ný stofnun freistar þess að endurtaka ákvörðun Skipulagsstofnunnar sem búið er að fella. Ákvörðunin var birt undir gamla málinu á vef skipulagsgáttarinnar. Mál sem stóð að væri lokið 4. júlí 2025 birti ný gögn 28. ágúst. Samtök eins og Landvernd, sem eru áskrifendur að nýjum ákvörðunum fengu því enga meldingu, en sáu fyrir tilviljun og halda stjórnvöldum sjálfum við efnið. Menningin mótar okkur og við mótumst af tungumálinu. Ef allt kapp er lagt á að ryðja úr vegi hindrunum, þess er freistað að sleppa umhverfismati, landeigendur taka möl úr árfarvegi og jafnvel grafa nýja skurði án framkvæmdaleyfis þá verðum við smám saman samdauna. Við vitum að það er ekki í lagi að kýla næsta mann, keyra undir áhrifum, brjótast inn í hús og stinga undan skatti. Pössum að sofna ekki á verðinum við að gæta landsins sem við fengum ekki gefins, heldur að láni frá komandi kynslóðum. Höfundur er formaður Landverndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorgerður María Þorbjarnardóttir Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun